Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 51
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, KRISTJANA BLÖNDAL
Tafla 3
Magn tóbaksreykinga
Hvað reykir þú venjulega margar sígarettur á dag?
1-5 6-10 11-20 Heiri en 20 Samtals Fjöldi svara
Bekkur % % % % %
9. bekkur 48 28 21 3 100 224
10. bekkur 42 30 25 3 100 244
Einungis þeir sem reykja.
Reykingar unglinga og fjölskyldugerð
Kannað var hvort reykingar unglinga tengdust fjölskyldugerð þeirra, þ.e. hvort það
skipti máli hvort unglingurinn byggi hjá báðum foreldrum, móður og sambýlis-
manni eða móður. Miðað var við hvar unglingurinn bjó á þeim tíma sem könnunin
fór fram. Unglingunum var skipt í tvo hópa, annars vegar þá sem reyktu ekki eða
höfðu prófað pað í 1-2 skipti og hins vegar þá sem höfðu reykt prisvar sinnum eða oftar
um ævina.
Kynbundinn munur kom fram á tengslum fjölskyldugerðar og reykinga. Bæði í
9. og 10. bekk var algengara að þær stúlkur hefðu reykt þrisvar sinnum eða oftar
sem bjuggu hjá móður og sambýlismanni en þær sem bjuggu hjá báðum foreldrum
eða móður (9. bekkur: 61%, 38%, 46% í réttri röð, minnsti munur er 15% +/-14,8%,
p<0,05; 10. bekkur: 73%, 46%, 56% í réttri röð, minnsti munur er 17% +/-15,9%,
p<0,05). Munur kom hins vegar ekki fram eftir fjölskyldugerð í tilviki pilta.
Viðltorf til reykinga
Unglingarnir voru spurðir annars vegar um það hvað þeim fyndist um reykingar
fólks og hins vegar hve mikla áhættu þeir teldu fólk taka með því að reykja.
Nánar tiltekið svöruðu unglingarnir því hvað þeim fyndist um það að fólk: a)
prófi að reykja sígarettur, b) reyki sígarettur öðru hverju og c) reyki 20 sígarettur
eða meira á dag. Svarmöguleikarnir voru þrír, þ.e. „Ég er mjög á móti því," „Ég er
frekar á móti því" og „Ég er ekki á móti því."
Athyglisvert var að viðhorf unglinga til reykinga fólks voru mjög sambærileg á
milli ára. Bæði þegar unglingarnir voru í 9. og 10. bekk var tæpur helmingur þeirra
mjög á móti pví að fólk prófi að reykja en um fjórðungur ekki á móti pví. Viðhorf
unglinganna til þess að fólk reyki öðru hverju var svipað. Afstaða þeirra var aftur á
móti mun neikvæðari til þess að fólk reyki 20 sígarettur eða meira á dag þar sem
um 80% voru því mjög mótfallin. Hins vegar voru 8% ekki á móti slíkum reykingum.
49