Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 55

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 55
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, KRISTJANA BLÖNDAL Tafla 6 Hassreykingar á tólf mánuðum Hve oft hefur þú reykt hass á síðastliðnum tólf mánuðum? Aldrei 1-2 3-5 6-9 10-19 Oftar Samtals Bekkur fjöldi % fjöldi % fjöldi % fjöldi % fjöldi % fjöldi % fjöldi % 9. bekkur 1215 95,7 35 2,8 7 0,6 4 0,3 3 0,2 5 0,4 1269 100 10. bekkur 954 88,6 53 4,9 19 1,8 17 1,6 14 1,3 19 1,8 1076 100 Fjöldi þátttakenda 1994: N=1293; 1995: N=1083. ára og 5,5% (59 unglingar) 15 ára. Þetta bendir til þess að flestir unglingar, sem reykt hafa hass í 10. bekk, prófi það fyrst 14 eða 15 ára. Viðhorf til hassneyslu Unglingarnir voru annars vegar spurðir hvað þeim fyndist um hassneyslu fólks og hins vegar hve mikla áhættu þeir teldu fólk taka með því að reykja hass. Nánar tiltekið voru þeir spurðir hvað þeim fyndist um að fólk: a) prófi hass, b) reyki hass öðru hverju og c) reyki hass reglulega. Svarmöguleikarnir voru þrír, þ.e. „Eg er mjög á móti því," „Ég er frekar á móti því" og „Ég er ekki á móti því." Bæði þegar unglingarnir voru í 9. og 10. bekk voru langflestir þeirra mjög á móti hassreykingum fólks. Þannig voru 87% unglinga í 9. bekk og 81% þeirra þegar þeir voru komnir í 10. bekk mjög á móti því að fólk prófi hass. Þessi 6% munur er marktækur (+/-3%, p<0,05), sem e.t.v. tengist því að fleiri unglingar höfðu prófað hass þegar í 10. bekk var komið (sjá síðar). Hlutfall þeirra, sem voru ekki á móti því að fólk prófi hass, var 6% í 9. bekk en 9% þegar þeir voru komnir í 10. bekk. Bæði árin voru hins vegar 92-93% þeirra mjög á móti því að fólk reyki hass reglulega en 3-4% voru því ekki mótfallin. , Unglingarnir svöruðu spurningum um hversu mikla áhættu þeir teldu fólk taka með því að a) prófa hass, b) reykja hass öðru hverju og c) reykja hass reglulega. Svarmöguleikarnir voru fjórir, þ.e. „Enga áhættu," „Nokkra áhættu," „Töluverða áhættu" og „Mikla áhættu." Niðurstöðurnar eru kynntar í Töflu 7. Bæði þegar unglingarnir voru í 9. og 10. bekk taldi meirihluti þeirra fólk taka mikla áhættu með hassneyslu yfirleitt. Einnig kom fram að því hærra hlutfall unglinganna taldi áhættuna mikla sem spurt var um meiri neyslu, bæði þegar þeir voru í 9. og 10. bekk. Þó kom fram breyting á milli ára, þar sem hlutfall þeirra sem töldu fólk taka mikla áhættu með hassneyslu lækkaði í 10. bekk miðað við árið á 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.