Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 91

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 91
JÓN SIGURÐSSON íslands, Rekstrardeild Háskólans á Akureyri, Rekstrardeild Tækniskóla íslands og Rekstrarfræðadeild Samvinnuháskólans á Bifröst. í fyrstu óformlegum undirbún- ingsdrögum Menntamálaráðuneytisins að þessu nýja verkefni, sem dagsett eru í desember 1995, er m.a. vikið að þeim markmiðum að greina styrkleika og veikleika, gera tillögur um úrbætur, afla kerfisbundinna upplýsinga, og þróa matsaðferðir. Þar er enn fremur ráð fyrir því gert að ráðuneytið skipi „stýrihóp" til að hafa yfirumsjón með verkefninu og til að velja sérfræðinga í „úttektarhóp". Hver skóli myndar síðan sinn „sjálfsmatshóp" og er einnig að öðru leyti gert ráð fyrir að unnið verði að verkefninu nokkurn veginn í samræmi við framar skráð yfirlit í þessari grein. „Stýrihópurinn" birti í mars 1996 hefti með leiðbeiningum til skólanna sem í hlut eiga (Stýrihópur Menntamálaráðuneytis 1996). TIL FRAMFARA, SKILVIRKNI OG ÁBYRGÐAR í þessu stutta ágripi um feril akademísks gæðamats um þessar mundir koma nokk- ur atriði fram sem ástæða er til að rekja nánar. Tvö atriði skulu nefnd sérstaklega að þessu sinni. Fyrra atriðið er sú staðreynd að ráð er fyrir því gert að sérfræðinganefndin sem framkvæmir gæðamatið sé skipuð jafningjum þeirra sem starfa við stofnunina sem meta skal, þ.e. einstaklingum sem hafa sams konar menntunar- og starfsreynslu- forsendur og reyndar beinlínis mjög gjarnan einstaklingum sem gegna sams konar störfum við aðrar sams konar stofnanir. í grundvallaratriðum er við það miðað að akademískt gæðamat sé mat jafningja sem „starfs- eða stéttarfélagar" taka að sér um „kollega" sína. í þessu felst annars vegar að gerðar skulu fyllstu kröfur til sér- fræðiþekkingar og sérstakrar reynslu matsmanna, en hins vegar verður að viður- kenna að í þessu felast einnig margs konar takmarkanir. Einfalt er að benda á hugs- anleg hagsmunatengsl innan sérfræðihópa og sérfræðingastétta, eða þvert á móti á streitu eða árekstra innan slíkra hópa sem áhrif geti haft á matið. Síðara atriðið snertir þá skilgreiningu „gæða" sem lögð er til grundvallar. í umræðum um gæðamál er yfirleitt byggt á þeim grunni sem reynsla úr viðskipta- og atvinnulífi hefur veitt (Dean og Evans 1994:7-13, Drummond 1993:17-19). Þá er við það miðað að markaðurinn, kaupandinn, neytandinn viðtökuaðili eða þegi í einhverri mynd ákvarði gæðin, hvað teljist gæði og hvernig þau skuli metin. Þá er sú skilgreining lögð til grundvallar að gæði verði metin eftir því hvort, að hve miklu leyti og hvernig væntingar og óskir viðtökuaðilja eru uppfylltar með þeirri vöru eða þjónustu sem boðin er. Matið og ákvörðunin kemur með öðrum orðum utan frá, frá þeganum, markaðinum. Framleiðandi eða þjónustuaðili er háður þessu mati og þessari ákvörðun og getur ekki annað en lotið þessu valdi. Hugtakið „gæði" felur þannig í sér hugsunarhátt „þjónustu við markað" og þær aðstæður sem þar geta skapast. Eins og staðið er að akademísku gæðamati um þessar mundir verður að viðurkenna að skilgreining gæða er ekki í fullu samræmi við það sem ella tíðkast í gæðastjórnun og þróunarviðleitni á þessu sviði. Skilgreining gæðanna í fræðslustarfinu ber enn talsverðan svip hefðbundinna og gamalgróinna viðhorfa um yfirvöld „frjálsra" háskóla sem geta ráðið málum sínum með boðum og bönn- 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.