Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Side 20
18
Árbók Háskóla íslands
Ávarp til nýstúdenta
Verið hjartanlega velkomnir, stúdentar, er
nú hefjið nám við Háskóla íslands. Vér
kennararnir eigum á margan hátt ábyrgð-
armikið og örðugt hlutskipti í lífinu, en
njótum hins vegar þeirra ómetanlegu fríð-
inda að eiga sífelld samskipti við hina ungu
kynslóð.
Unga kynslóðin er opin og djörf, óbug-
uð af þreytu lífsins. Hún er framsýn, enda
þótt hún skynji framtíðina „svo sem í
skuggsjá, í óljósri mynd“. Samtíð vor og
fyrirbrigði hennar eru sannarlega merk.
Annars vegar sáum vér afrek mannsandans
í sýnilegri mynd, er tunglfararnir birtust
oss á tunglinu sjálfu, sem ef til vill mun
leiða oss til enn meiri þekkingar og fram-
fara. Hins vegar stendur oss geigur af
eyðingarmætti þekkingarinnar. Má vera,
að síðara atriðið sé þýðingarmikið fyrir
yður, rétt eins og vér finnum einnig sárlega
til þess, hversu seint og illa gengur að ráða
bót á vandkvæðum mannkyns á þessum
hnetti, er vér byggjum. — Ég seilist aftur
til orða Pindars, er hann lýsti því, að í landi
hinna sælu ríki eilíft vor.
í háskólanum ríkir vorið, en vorið er
viðkvæmur árstími og hættusamur í þessu
landi. Hlúa verður að gróðrinum eftir því
sem föng standa til, svo að ávöxtur verði.
Þér eruð vorgróðurinn og oss kennurum
ber að hlúa að yður og kalla það besta
fram, sem býr í hverjum yðar. Verið iðin;
iðnin er móðir velgengninnar; lífið er stutt,
en listin löng; fornkveðið er það. Verið
reglusöm í hvívetna, því reglusemi gerir
vinnuna léttbæra. Verið glöð, því gleðin
tilheyrir ykkar skeiði; gleðin er ávinningur
lífsins, vængir hugarins. Verið sjálfstæð,
því sjálfstæðið er ekki einvörðungu til-
gangur kennslunnar heldur æðsta markmið
lífsins.
Vér eigum að heita kennarar yðar, en
tilgangur vor í kennslunni er að kalla fram
þann eiginlega kennara, sem býr í yður
sjálfum. Enginn kennari megnar meira en
að losa um vængi arnarins bundna. Viljið
þér þreyta flug sem ernir, verðið þér sjálf
að reyna vængvöðvana og þenja. Reynið
yður sjálf, hugsið sjálf, reynið sjálf skiln-
inginn, þá fyrst öðlist þér sanna þekkingu
og sjálfstæði.
í þessu felst ekkert nýtt, heldur eru
þetta gömul sannindi, sem eigi eru fyrnd.
Glatið ekki fyrir vangæslu tækifæri því,
sem yður býðst.
Berið virðingu fyrir náunga yðar og fyrir
sjálfum yður.
Að svo mæltu tek ég af yður þau loforð,
að þér virðið lög og reglur Háskóla íslands,
og bið yður að ganga fram til að staðfesta
þau með handsali yðar. Sé það góðu heilli
gjört.