Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Page 14
12
Árbók Háskóla íslands
Háskólahátíð 29. júní 1985
Annáll háskólaársins 1984-85
Nemendur og kennsla
í Háskóla íslands voru á sl. kennslumiss-
eri 4394 nemendur á skrá; þar af voru 1838
nýjar innritanir. Fjölgað hefur í háskólan-
um um 50% á 6 árum.
Pessi mikla aukning, sem er u.þ.b. helm-
ingi meiri en raunveruleg aukning fjár-
veitinga, hefur krafist ýmissa bráða-
birgðaaðgerða. Öllum er ljóst að þær fá
ekki staðist til lengdar, enda má búast við
að fjölga muni enn í háskólanum um 1000
manns á næstu árum.
Til að undirbúa stefnumótun í málefnum
háskólans næstu 4-5 árin fól háskólaráð
svonefndri Þróunarnefnd að samræma
áætlanir deilda og námsbrauta um kennslu
og rannsóknir í hefðbundnum og nýjum
greinum með hliðsjón af aukinni aðsókn að
háskólanámi og þörf þjóðarinnar fyrir há-
skólamenntað fólk. I kjölfar þessarar
vinnu skipaði menntamálaráðherra síðan
nefnd í febrúar sl. til að gera tillögur um
fjárveitingar til Háskóla íslands 1986-1989.
Á fundi háskólaráðs var samþykkt að
leggja áherslu á eftirtalin meginatriði:
1. Fjárveitingum til háskólans verði skipt í
þrennt:
a) Fjárveitingar til kennslu og sameig-
inlegra þarfa er fara eftir nemenda-
fjölda.
b) Rannsóknarfé er m.a. fari eftir
stöðufjölda.
c) Framkvæmdafé til jafns við framlag
Happdrættis H.í.
Með a-lið er verið að tryggja fjárveiting-
ar í hlutfalli við aðsókn að háskólanum.
Eðlilegt er að háskólinn skipti sjálfur
því viðbótarfé, sem fæst, milli deilda og
námsbrauta. í b-lið er hugsunin einnig
sú, að háskólinn fái óskipta viðbót er
skipt verði innan háskólans, aðallega til
einstakra rannsóknarverkefna hverju
sinni.
Fyrirsjáanlegt er að taka muni um 15
ár að reisa þær nýbyggingar, sem há-
skólaráð hefur ákveðið eða áform eru
um, ef til kæmi happdrættisfé einvörð-
ungu. Höfuðáhersla verði því lögð á að
fá fjárveitingar til að hraða þessum
framkvæmdum. Þetta tengist einnig ný-
sköpun í atvinnulífinu, og brýna nauð-
syn ber til að háskólinn fái hluta af „ný-
sköpunarfé“ ríkisstjórnarinnar í sinn
hlut til tækjavæðingar o.fl.
2. Nýjar stöður:
a) Hlutur stundakennslu minnki á
tímabilinu 1986-1989 úr rösklega
helmingi í um þriðjung af heildar-
kennslu.
b) Hinar nýju stöður verði að einhverju
leyti skammtímastöður og hluta-
stöður og færanlegar milli greina.
c) Nýjar stöður þarf einnig í stjórn-
sýslu, til aðstoðar í deildum og náms-
brautum, svo og til rannsóknastarfa.
3. Ákvarðanir um nýjar námsleiðir og
framhaldsnám verði samningsatriði við
ráðuneyti hverju sinni og háðar viðbót-
arfjárveitingu.
4. Háskólinn sinni endurmenntun, og
honum verði gert fjárhagslega kleift að
veita fræðslu utan sinna vébanda.
5. Sérstök áhersla verði lögð á aukið bóka-
kaupafé. I því skyni verði m.a. stuðlað
að því, að Happdrætti Háskóla íslands
fái lagaheimild fyrir nýrri tegund happ-
drættis.
6. Ráðgjöfvið nemendur um námsval o.fl.
verði efld til að draga úr fráhvarfi frá
námi.
7. Athugað verði að stækka samstarfs-
nefnd um málefni Háskóla íslands með