Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Qupperneq 135
Félagsvísindadeild og fræðasvið hennar
133
gerir fræðimönnum kleift að afla upplýs-
inga til fræðilegra rannsókna á hagkvæmari
hátt en áður. Þá er einnig stefnt að því að
afla tekna til tækjakaupa og til útgáfu á
fræðiritum.
Meginþættir starfseminnar eru upplýs-
ingaöflun, gagnavinnsla, úttektir, skýrslu-
gerð, þjóðmálakannanir, fjölmiðlakann-
anir og ráðgjöf.
Yfirlit um helstu verkefni sem
stofnunin vann að á árinu 1986
1. Fyrsta verkefnið sem stofnunin tók að
sér var könnun á húsnæðismálum unga
fólksins, sem unnin var fyrir félagsmála-
ráðuneytið, Húsnæðisstofnun ríkisins og
Norðurlandaráð. Umsjón með því verk-
efni hafði dr. Stefán Ólafsson. Áður hafði
verið byrjað að vinna að því verkefni innan
félagsvísindadeildar í samstarfi með starfs-
’nönnum Húsnæðisstofnunar ríkisins. í
lóvember 1985 höfðu fyrstu niðurstöður
þessarar könnunar verið kynntar aðilum og
einnig var þingmönnum boðið til kynning-
arfundar í Odda. Félagsmálaráðherra stóð
straum af kostnaði við kynningu þessa.
Niðurstöður úr rannsókn þessari, svo og
sérúrvinnsla á gögnunum, voru sendar til
Socialforskningsinstituttet í Kaupmanna-
höfn, og er áætlað að þær verði birtar í
skýrslu frá þeirri stofnun sem fjallar um
húsnæðismál ungs fólks á öllum Norður-
löndunum. Rætt hefur verið um að síðar
verði birt ítarleg lokaskýrsla hér á landi
sem innihaldi samanburðarefni frá hinum
Norðurlöndunum, en fjárveiting hefur
ekki enn fengist til þess verkefnis.
2- Stéttarsamband bænda og Samtök
sauðfjárbænda óskuðu eftir því, að stofn-
unin gerði úttekt á þýðingu landbúnaðar
fyrir atvinnulífið á landinu öllu og í einstök-
Uru héruðum. Sérstaklega skyldi gætt að
svokölluðum margföldunaráhrifum land-
húnaðar á aðrar atvinnugreinar og þýðingu
fyrir byggðaþróun. Umsjón hafði dr. Stef-
au Ólafsson. Fyrri hluta ársins var unnið að
gagnaöflun vegna þessa verkefnis og leið-
réttingu gagna um slysatryggðar vinnuvik-
ur í landbúnaði vegna skekkju sem í þeim
er. Að þessu vann Þór Indriðason. Um mitt
sumar var lögð fram bráðabirgðaskýrsla á
landsfundi Samtaka sauðfjárbænda að
Hólum í Hjaltadal sem Gunnar Helgi
Kristinsson stjórnmálafræðingur samdi.
Verk þetta er langt komið nú í lok ársins.
3. Ákveðið var að stofnunin skyldi
gangast fyrir reglubundnum þjóðmála-
könnunum með svo kölluðu „spurninga-
vagns-fyrirkomulagi“. Með því var aðilum
gefinn kostur á að fá sérspurningar inni í
slíkum könnunum gegn ákveðnu gjaldi.
Þetta er mjög hagkvæm leið til gagnaöflun-
ar og virðist ætla að gefa góða raun. Margir
aðilar hafa leitað til stofnunarinnar um
upplýsingaöflun með þessu lagi, og kenn-
arar félagsvísindadeildar hafa einnig notað
þessa leið til að afla gagna í fræðilegum til-
gangi. Umsjónarmenn þjóðmálakannana
eru dr. Stefán Ólafsson og Ólafur Þ. Harð-
arson stjórnmálafræðingur, en dr. Friðrik
H. Jónsson hefur séð um gagnaöflun og
stóran hluta af tölvuvinnslu niðurstaðna.
Dr. Friðrik H. Jónsson hefur almennt
starfað mikið að tölvuvinnslu gagna á veg-
um stofnunarinnar. I þjóðmálakönnunum
er spurt um ýmsa þætti þjóðmála en einnig
hefur verið safnað allmiklu af efni sem mun
nýtast í fræðilegum rannsóknum, sem fyrr
segir, t.d. um atvinnuþátttöku, vinnutíma,
fjölskylduaðstæður og tekjur.
Fyrsta þjóðmálakönnunin var fram-
kvæmd í apríl 1986, og var úrtakið 1500
manns á aldrinum 18 til 80 ára af öllu land-
inu.
Önnur þjóðmálakönnunin var fram-
kvæmd í maí og náði eingöngu til Reykja-
víkur, enda fjallaði hún um borgarstjórnar-
kosningarnar.
Þriðja þjóðmálakönnunin var gerð í nóv-
ember, og var hún með líku sniði og apríl-
könnunin.
Félagsvísindastofnun hefur unnið fyrir