Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Page 204
202
Árbók Háskóla íslands
Samskrá um erlend tímarit kom út 1978,
viðauki 1980.1 undirbúningi er ný heildar-
útgáfa af þessari samskrá.
Ásamt ýmsum öðrum íslenskum bóka-
söfnum tekur Háskólabókasafn þátt í
NOSP, samskrá um erlend tímarit í rann-
sóknarbókasöfnum á Norðurlöndum, sem
kemur út tvisvar á ári (sjá fýrri skýrslur í
Árbók H.Í.).
9. Safndeildir
Á vegum Háskólabókasafns eru starf-
ræktar eftirfarandi safndeildir (útibú):
Árn
Árnagarður. Bókastofa þar var opin virka
daga kl. 10-13:15, og var bókavörður á
staðnum á þeim tíma.
Dansk
Danska lektoratið í Norræna húsinu.
Ensk
Enskukennsla, Aragötu 14. Reyntvaraðfá
stúdenta til að halda safndeildinni opinni
nokkra tíma á dag, en vegna skorts á gæslu-
fólki hefur starfrækslan verið mjög stopul.
Hafa þá kennarar hlaupið undir bagga og
annast nauðsynlegustu afgreiðslu.
Finn
Finnska lektoratið í Norræna húsinu.
Guðfr
Guðfrœðideildarstofa í aðalbyggingu há-
skólans (stofa 5).
Heil
Rannsóknarstofa í heilbrigðisfrœði, Sig-
túni 1.
Hjúk
Námsbraut í hjúkrunarfrœði, Eiríksgötu
34. Bókasafnið þar var opið á virkum dög-
um kl. 9-16, og var bókavörður á staðnum
þann tíma.
Hsp
Heimspekistofa í Lögbergi (stofa 202).
Safndeildin var lögð niður 8. júlí 1985 og
bækurnar fluttar í aðalsafn.
Jarð
Bókasafn í jarðfrœði og landafrœði í Jarð-
fræðahúsi. Háskólinn og Norræna eld-
fjallastöðin standa sameiginlega að safn-
inu. Safndeildin var opin virka daga kl. 9-
17 yfir vetrartímann, en kl. 9-12 á sumrin.
Bókavörður var á staðnum hálfan daginn á
veturna, en annars annaðist starfsmaður
Eldfjallastöðvar gæsluna.
Lag
Lagabókasafn í Lögbergi. Safnið var yfir
vetrartímann opið virka daga kl. 10-12 og
13-16. Bókavörður var á staðnum eftir há-
degi en að öðru leyti önnuðust laganemar
gæslu. — Viðupphafhaustmissirisl985var
setukrók stúdenta til vinstri við innganginn
í safnið breytt í bókavarðarherbergi, en
safnrými aukið sem nam fyrra herbergi
bókavarðar. Jókst bókarými við það úr 248
hillumetrum í 334 hillumetra.
LL
Lyfjafræði lyfsala í íþróttahúsi háskólans
(efri hæð). Eldri árgangar tímarita eru sem
fyrr geymdir í húsnæði LL í kjallara aðal-
byggingar.
Nátt
Lesstofa í líffrœði, Grensásvegi 12.
Norsk
Norska lektoratið í Norræna húsinu.
RH
Bókasafn Raunvísindastofnunar háskól-
ans. Á árinu 1985 var bætt við um 20 lengd-
armetrum af hillum, og nemur heildarrými
fyrir rit þá um 220 hillumetrum.
RL
Rannsóknarstofa í lyfjafrœði á 1. hæð og i
kjallara aðalbyggingar.
Sál
Safndeild sálfrœðinema í VR.
Sjúk
Námsbraut ísjúkraþjálfun, Vitastíg 8.
Sænsk
Sœnska lektoratið í Norræna húsinu.
VR
Bókasafn verkfrœði- og raunvísindadeild-
ar, Hjarðarhaga. Bókavörður var á staðn-
um kl. 13-16 alla virka daga.