Valsblaðið - 01.05.2009, Qupperneq 9
Starfið er margt
Öflugt félags- og sjálfboðastarf
í sumar var gert sérstakt átak í fjölg-
un félagsmanna í Val. Til að stjórna því
verkefni var fenginn Ingi Björn Alberts-
son og eins og hans var von þá fjölgaði
skráðum félagsmönnum töluvert og eru
þeir nú á sjötta hundrað. Markmið okk-
ar er að fjölga þeim mun meira á þessu
ári og næsta því sannarlega erum við allt
offá.
Það hefur oft verið rætt hin síðari ár að
tími sjálfboðaliða væri liðinn. Sem bet-
ur fer er þetta ekki raunin og innan okk-
ar félags er margt fólk sem finnur sig í að
styðja við félagið sér til ánægju í símum
frítíma. Þessu fólki þakka ég þeira fram-
lag sem aldrei er of þakkað. Einnig finn
ég fyrir því í starfi mínu sem formaður
hversu gott er að leita aðstoðar með ýmis
mál til félagsmanna sem undantekning-
arlítið eru tilbúnir til að ljá félaginu lið-
sinni sitt. Ég vil hvetja fólk til að koma
til starfa fyir félagið á sínum forsendum,
næg og fjölbreytt verkefni eru fyrir alla í
lengri eða skemmri tíma. Sterkir innvið-
ir eru undirstaða hvers félags og það er í
höndum okkar félagsmanna hverju sinni
að efla þá og styrkja.
Það þótti tíðindum sæta í haust þeg-
ar Valur féllst á beiðni bræðrafélagsins
Hauka um að þeir fengju að leika nokkra
leiki á knattspyrnuvelli Vals næsta sum-
ar. Haukar sem nú eru í efstu deild að
nýju í knattapymu eftir nokkra fjarvem
bæði í kvenna- og karlaflokki, hafa ekki
aðstöðu á félagssvæði sínu fyrir stærri
viðburði í knattspyrnu, fengu ekki áheym
hjá nágrönnum sínum í FH um afnot að
velli þeirra. í ljósi sögunnar og uppmn-
ans kom ekki annað til greina af hálfu
Vals en að gata Hauka yrði greidd eins
og kostur yrði, þó þannig að það kæmi
ekki niður á meistaraflokkum Vals. Þetta
var ekki síst gert til að heiðra minningu
stofnanda félaganna sr. Friðriks Friðriks-
sonar. Við tökum því vel á móti Haukum
hér á Hlíðarenda næsta sumar og bjóðum
þá velkomna.
Valsmenn hf. em ómetanlegur bak-
hjarl Vals og ekki síst á tímum eins og
við upplifum nú um stundir. Á árinu hafa
þeir styrkt félagið til að laga aðstöðu fyr-
ir iðkendur og foreldra í félagsaðstöð-
unni, lagfært aðkomu við húsið, lagt til
útilýsingu, greitt fyrir girðingarvinnu
í kringum félagssvæðið svo fátt eitt sé
nefnt. Vil ég þakka Brynjari Harðarsyni
stjórnarformanni og stjóm Valsmanna
fyrir umhyggju þeirra fyrir öllu sem að
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals 2009 með framkvœmdastjóra. Frá vinstri.
Stefán Karlsson framkvœmdastjóri Vals, Sveinn Stefánsson formaður handknattleiks-
deildar, Hörður Gunnarsson formaður, Eggert Þór Kristófersson varaformaður og
Lárus Blöndal formaður körfuknattleiksdeildar. A myndina vantar E. Börk Edvardsson
formann knattspyrnudeildar, Hafrúnu Kristjánsdóttur og Hermann Jónasson.
Val snýr og virkilega gott samstarf á
árinu sem er að líða.
Ný stjóm var kjörin á aðalfundi félags-
ins 1. apríl sl. Stjórnina skipa: Hörður
Gunnarsson formaður, Eggert Þór Krist-
ófersson varaformaður, Hafrún Kristjáns-
dóttir, Hermann Jónasson, Edvard Börkur
Edvardsson formaður knattspyrnudeildar,
Sveinn Stefánsson formaður handknatt-
leiksdeildar og Láms Blöndal formaður
körfuknattleiksdeildar.
Að lokum vil ég þakka starfsfólki
Knattspymufélagsins Vals undir stjóm
Stefáns Karlssonar framkvæmdastjóra fyr-
ir vel unnin störf og gott samstarf og óska
þeim ásamt öllum Valsmönnum og fjöl-
skyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs með von um að saman ger-
um við Val að enn stærra og betra félagi.
Valskveðja,
Hörður Gunnarsson formaður
Knattspyrnufélagsins Vals
Baldur Bongó ódrepandi í pöllunum með trommurnar að vopni. Stuðningsmenn geta
skipt sköpum og gefa liðinu þann aukakraft sem þarftil að fara alla leið.
Valsblaðið 2009
9