Valsblaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 63
ÍHft&Iii
Atli Sveinn skoraði sigurmarkið í lokaleik íslandsmótsins 2007 gegn HK í 1-0 sigri sem tryggði Val titilinn eftir 20 ára bið.
KA undir stjóm Sigga Lár Skagamanns,
hann hafði mikla trú á mér og eftir það
var ekki aftur snúið.
Marnir KA leikmenn auk Atla hafa
gengið til liðs við Val
„Ég er einn af þeim fótboltamönnum sem
er alltaf að segja frægðarsögur af því vað
við vomm einu sinni góðir í handbolta,
en ég á 5 Islandsmeistaratitla í hand-
bolta í KA og var í frábærum hópi og á
ég ógleymanlegar minningar frá hand-
boltaferlinum," segir Atli stoltur. Sum-
ir strákanna leika enn handbolta, t.d. Jón-
atan Magnússon, en enginn úr hópnum
hefur komið til Vals úr hans árgangi en
Heimir Árnason og Baldvin Þorsteins-
son sem nú leika með Val í handbolta eru
á svipuðum aldri. Atli vekur jafnframt
athygli á því hversu margir KA leikmenn
hafi komið til Vals á undanfömum árum
og það finnst honum ánægjulegt. Auk
handboltastrákanna nefnir hann félaga
sína í Valsliðinu um lengri eða skemmri
tíma, Pálma Rafn Pálmason, Örn Kató
Hauksson og Þorvald Makan Sigbjörns-
son. Ekki megi gleyma Jóni Kristjáns-
syni sem lék áður handbolta með Val og
þjálfaði liðið um tíma. „Það er skemmti-
legt hversu margir KA menn hafa kom-
ið til Vals en ég hef enga hugmynd um
ástæður þess,“ segir Atli hugsi.
Tvítugur í atvinnumennsku til
Orgryte í Svíþjéð
Atli Sveinn fór til reynslu til sænska
úrvalsdeildarliðsins Örgryte tvítugur að
aldri árið 2000, og fékk árið eftir A liðs
samning við liðið. „Þetta var mjög lær-
dómsríkur tími í Svfþjóð, en ég lék með
þeim fjögur tímabil og við vorum í topp-
baráttunni í Allsvenskan á þessum árum.
Eftir á að hyggja hefði ég viljað spila
meira með liðinu, sérstaklega síðari árin.
Konan mín var í hjúkrunarfræðinámi úti
og við vorum komin með okkar fyrsta
barn þannig að við skelltum okkur bara
heim aftur sumarið 2004 til að spila með
KA. Við fluttum reyndar aftur út um
haustið, konan mín var að klára námið
og ég æfði með Örgryte og lék eitthvað
með þeim, en samningurinn rann út í
október. Skömmu síðar höfðu Valsmenn
samband og það var ekki erfið ákvörðun
enda stefndum við að flytja aftur heim.“
Góð óp með Willum
„Þegar ég kom til Vals var nýbúið að
ráða Willum Þór Þórsson sem þjálfara
og fá ýmsa nýja leikmenn sem mynduðu
ásamt leikmönnum sem fyrir voru ákveð-
inn kjarna í Valsliðinu. Þar má t.d. nefna
Steinþór Gíslason, Grétar Sigfinn Sig-
urðsson, Kjartan Sturluson, Sigþór Júlí-
usson og Gumma Ben. Það var augljós-
lega mikill kraftur í stjórn félagsins og
Willum náði upp mikilli stemningu strax
með þennan hóp í höndunum. Árin á
undan höfðu verið liðinu erfið, það hafði
rokkað á milli deilda, oft skipt um þjálf-
ara með lítinn stöðugleika og í raun voru
menn hættir að taka Val alvarlega sem
lið í fótbolta karla, þrátt fyrir glæsta for-
tíð. Þessu vildu menn breyta með nýrri
stjórn, nýjum þjálfara og nýjum leik-
mönnum ásamt þeim góða kjarna sem
var til staðar. Okkur hefur tekist að festa
Val í sessi sem alvörufélag að nýju, sér-
staklega fyrstu þrjú árin þótt heldur hafi
gengið illa á undanförnum tveimur árum.
Fyrsta árið mitt vorum við bikarmeist-
arar og urðum í 2. sæti í deildinni. Síð-
an urðum við loksins íslandsmeistarar
2007 eftir tuttugu ára bið hjá félaginu og
Valsblaðið 2009
63