Valsblaðið - 01.05.2009, Síða 62
Atli Sveinn Þórarinsson hefur leikið nteð meistarallokki Vals i knattspyrnu
síðastliðin 5 timabil og hefur verið einn lykilmanna liðsins allan tímann. Hann
hefur á þeim tíma hampað fjölmörgum titlum með Val en segir að síðasla tímahil
hafi verið mikil vonbrigði fyrir sig og liðið í heild. Atli hefur gert nýjan samning
við Val til priggja ára og vill taka pátt í að koma Val á toppinn að nýju
Atli Sveinn tók vel í beiðni Valsblaðs-
ins um viðtal um ferillinn og árin hjá
Val. Biaðamaður Valsblaðsins heimsótti
Atla Svein og fjölskyldu eina kvöldstund
í nóvember yfir kaffi og súkkulaði til að
spjalla og skoða myndir af ferlinum. Atli
Sveinn og fjölskylda hefur komið sér vel
fyrir í Víkingshverfinu með konu sinni
Höllu Bjarklind og þremur sonum, Atli
Gauta sem er byrjaður að æfa fótbolta
með Víkingi, Ara Val og ívari Hrafni.
Atli hefur frá ýmsu skemmtilegu að
segja um íþróttaferilinn sem spannar alls
23 ár með KA, Örgryte í Svíþjóð og Val.
Einnig hefur Atli leikið nokkra landsleiki
í fótbolta og á glæstan feril í handbolta
með yngri flokkum KA.
Atli Sveinn er fæddur 1980 á Akur-
eyri, uppalinn í hjarta KA hverfisins eins
og hann kemst sjálfur að orði og það er
greinilegt að í honum slær KA hjarta
Eftir Guðna Olgeirsson
auk Valshjartans. Hann er elstur þriggja
systkina og segir að töluverður íþrótta-
áhugi sé í fjölskyldunni, en faðir hans
Þórarinn Egill Sveinsson lék á yngri
árum bæði fótbolta og handbolta með KA
en móðir hans Inga Einarsdóttir var sjálf
ekki í íþróttum en þau hafa bæði verið
afar dugleg í öllum stuðningi við starfið
í KA og stutt hann mikið í gegnum tíð-
ina. Atli er elstur þriggja systkina sem
öll hafa lagt stund á boltaíþróttir, Kjartan
Páll bróðir hans er í fótbolta og lék síð-
astliðið sumar með Aftureldingu en Þór-
dís Inga systir hans var í handbolta, t.d.
með HK en er nú hætt.
Var í handbolta og fótbolta og fleiri
íbróttagreinum ó yngri órum
„Ég byrjaði 6 ára að æfa fótbolta í KA
með vinum mínum og hafði góða þjálfara
í yngri flokkunum, t.d. Þorvald Örlygs-
son, Erling Kristjánsson og Ólaf Gott-
skálksson en sá maður sem hafði mest
mótandi áhrif á mig sem íþróttamann var
Jóhannes Bjarnason sem þjálfaði mig
bæði í handbolta og fótbolta og er ég afar
þakklátur fyrir allt sem hann gerði fyr-
ir mig. Ég prófaði margar íþróttagreinar
á yngri árum, var í handbolta og fótbolta
alla yngri flokkana, prófaði júdó í nokk-
ur ár, glímu og var síðan í körfubolta hjá
Þór í eitt ár. Þegar ég var 17 ára valdi ég
fótboltann fram yfir handboltann þrátt
fyrir að mér hafði í raun gengið mun bet-
ur í handboltanum. Þar var ég í sterkum
hópi sem vann fjölda titla en í fótbolt-
anum var árangurinn í yngri flokkunum
ekkert til að hrópa húrra yfir. Okkur gekk
bara svona la, la, en í heildina fannst mér
samt skemmtilegra í fótbolta. 17 ára fékk
ég sénsinn að leika með meistaraflokki
62
Valsblaðið 2009