Valsblaðið - 01.05.2009, Qupperneq 92
„Olíkir heimar
en innihaldið
það sama“
- Dagur Sigurðsson, þjálfari Fiichse Berlfn, í spalli
Eftip Einar Örn Jónsson
Dagur Sigurðsson gat sér ungur gott orð
í handknattleiksliði Vals. 16 ára var hann
orðinn fastamaður liðsins og hápunkt-
inum náði hann eflaust árið 1996 þeg-
ar fjórði íslandsmeistaratitillinn í röð
vannst. Sama ár hélt hann á vit ævintýr-
anna þegar hann, ásamt Ólafi Stefáns-
syni, samdi við Wuppertal í Þýskalandi.
Eftir fjögur ár í örmum þýskra kom
hann mörgum á óvart og samdi við jap-
anska liðið Wakunaga. Að loknum þrem-
ur árum í landi hinnar rísandi sólar gerð-
ist hann leikmaður og þjálfari austurríska
liðsins Bregenz þar sem hann endurtók
leikinn frá árunum í Val og varð meistari
fjögur ár í röð, 2004—2007. Þá sneri Dag-
ur aftur í heimahagana og gerðist fram-
kvæmdastjóri Vals og því starfi gegndi
hann til síðustu áramóta en hann hafði í
mars 2008 tekið við starfi landsliðsþjálf-
ara Austurríkis. í sumar söðlaði hann svo
aftur um og heldur nú um taumana hjá
hinu stórhuga þýska liði Fiichse Berlín,
ásamt landsliðsþjálfarastarfinu austur-
ríska.
Ég fíla mig rosa vel, segir Dagur
aðspurður um nýju heimkynnin. Borg-
in er frábcer og klúbburinn spennandi.
Umgjöröin og allt í kringum liðið er
frábœr. Það er mikil pressa á liðinu að
ganga vel núna, við erum í höfuðborg-
inni og almenningur er farinn að þrýsta
á velgengni. Svo eru fjölmiðlar hérna
mjög grimmir, hreinrœktuð gul pressa.
Eltast við alls konar smámál og gera úr
þeim einhver vandrœði en svo er allt frá-
bœrt þegar vel gengur.
Fiichse Berlín var í 8. sæti um miðj-
an desember eftir að hafa lokið keppni á
síðasta tímabili í 10. sæti. Dagur segir að
þeir hafi verið óheppnir með leikjaniður-
röðun í upphafi tímabils og þurft að kljást
við flest stórlið deildarinnar á heimavelli
og ekki sótt gull í þeirra greipar. Það hafi
aukið kröfumar á sigur í útileikjunum
sem hafi gengið að mestu. Ætli við séum
ekki á pari hingað til. Það er komið jafn-
vcegi í þetta hjá okkur eftir erfiða byrj-
un. Ég veit betur um áramótin hvar við
stöndum, þá erum við búnir að mœta öll-
um liðunum og þá get ég gert upp hvort
við séum á réttum stað eða hvort við œtt-
um að gera betur. Það er ekkert laun-
ungarmál að klúbburinn stefnir á Evr-
ópusœti í nánustu framtíð og ég geri mér
vonir um að rífa liðið upp um 2 eða 3
sceti í deildinni.
Dagur segir í eðli sínu lítinn mun á að
starfa í íslensku íþróttafélagi og þýsku
stórliði. Þetta snýst um að velja rétt sam-
starfsfólk, skapa góðan anda og halda
mönnum á tánum. Hérna kem ég ekki að
fjármálum klúbbsins beint þó ég komi
að kaupum og sölum á leikmönnum. Ég
er mest í íþróttahúsinu að sinna þjálf-
un. Stœrðarmunurinn er þó augljós. Við
fáum að meðaltali 7.500 áhorfendur á
heimaleikina og hér eru allir atvinnu-
menn. Umgjörðin í kringum félögin eru
tveir ólíkir heimar en innihaldið er það
sama.
Þó að enn hafi lítið á það reynt seg-
ir Dagur að vel hafi gengið að samræma
starf sitt í Berlín við landsliðsþjálfara-
stöðuna hjá Austurríki. Þetta hefur ekki
verið nema ein vika hingað til. Það gekk
vel með landsliðið þá vikuna en mest
kemur til með að reyna á þetta í janúar
þegar EM fer fram í Austurríki. Svo hef-
ur það hjálpað mér að fylgjast með aust-
urrísku leikmönnunum hérna því þeir eru
margir í deildinni hér, þar á meðal einn í
liðinu hjá mér.
Dagur vill ekki gera mikið úr fjaðra-
fokinu sem varð í kringum ráðningu
landsliðsþjálfara íslands á sínum tíma.
Það er ekkert launungarmál að mér var
boðið starfið en ég var ekki til í að gefa
starf mitt hjá Val upp á bátinn fyrir það.
Þegar ég gekk svo til liðs við Berlín var
staðan heima orðin allt önnur í kjöl-
far hrunsins þó að Valur hafi staðið bet-
ur en nokkru sinni fjárhagslega. Eg gekk
því stoltur frá starfi mínu þar. Hann úti-
lokar jafnframt ekki að snúa aftur að
Hlíðarenda í framtíðinni. Ég kem senni-
lega alltaftil með að skipta mér eitthvað
af hlutunum á Hlíðarenda. Ég hef allt-
af sagt að mig langi til að þjálfa Vals-
liðið en hvenœr það verður veit enginn.
Eg gœti líka alveg hugsað mér að setjast
í stjórnina eða bara eitthvað annað. Það
er svo margt sem heillar í þessu starfi. í
augnablikinu einbeiti ég mér þó að Berl-
ín og að því að skríða upp töfluna.
92
Valsblaðið 2009