Valsblaðið - 01.05.2009, Qupperneq 64
Sigursœlir íslandsmeistarar KA í handbolta 1991 í 5.flokki eftir sigur á ÍR í úrslitaleik undir stjórn Jóhannesar Bjarnasonar sem
er lengst til hœgri á myndinni. Þórarinn Egill Sveinsson faðir Atla og liðstjóri er í efri röð lengst til vinstri. Atli er í efri röð sá
fimmti frá vinstri. Atli vann alls 5 Islandsmeistaratitla með KA íyngri flokkum í handbolta. Á myndinni til hœgri hampar Atli Sveinn
íslandsmeistarabikarnum í eitt þessara skipta.
á þeim tíma unnum við nánast öll mót,
t.d. Reykjavíkurmót og íslandmótið inn-
anhúss, deildarbikar og titlarnir streymdu
til félagsins. Síðan gekk okkur held-
ur verr í fyrra, enduðum í 5. sæti í deild-
inni en í sumar var langversta tímabilið
þar sem allt gekk á afturfótunum og við
enduðum í 8. sæti þegar upp var staðið,
langt undir væntingum okkar og allra í
kringum félagið. Hópurinn hjá Val hefur
alla tíð verið mjög góður, mórallinn hef-
ur verið fínna og allt gekk okkur í hag-
inn á tímabili og nú er kominn tími til að
sanna sig að nýju,“ segir Atli ákveðið.
Eðlilegt að stuðningsmenn Vals geri
miklar kröfur
Atli Sveinn segist hafa gert sér vel grein
fyrir gagnrýni stuðningsmanna Vals á
síðasta tímabili og telur að hún hafi á
margan hátt átt rétt á sér. Liðið hafi ein-
faldlega ekki staðið undir væntingum og
hann hefur fullan skilning á því að stuðn-
ingsmenn hafi verið ósáttir. „ Ég held að
það sé miklu skemmtilegra að spila fyr-
ir Val sem er félag með sögu, mikla hefð
og marga titla á bakinu en fyrir félag sem
hefur ekki náð sömu stöðu þar sem eng-
inn reiknar með árangri. Mér finnst það
forréttindi að spila fyrir félag sem vill
vinna titla. Mér finnst sjálfsagt að stuðn-
ingsmenn og forysta félagsins geri mikl-
ar kröfur og láti leikmenn fá að heyra
þær skoðanir. Mér finnst að uppbyggileg
gagnrýni stuðningsmanna skipti miklu
máli og er mikilvæg til að skapa metn-
að. Mér þætti verra ef stuðningsmönn-
um væri alveg sama um gengi og árang-
ur liðsins og ekki má gleyma því að
stuðningsmennirnir hafa verið lengur hjá
félaginu en ég. Ég þekki það með stóru
liðin úti í heimi, t.d. Juventus, AC Milan
og Liverpool að stuðningsmenn eru fljót-
ir að snúa baki við félaginu þegar illa
gengur og sýna litla þolinmæði. Almennt
finnst mér stuðningsmannamenning á
Islandi of mjúk og mér finnst frábært ef
félög eiga kröftuga og kröfuharða stuðn-
ingsmenn," segir Atli hógværðin upp-
máluð.
Hvað gerðist hjá Valsliðinu í sumar?
„Það er ekki auðvelt að segja en árið
2008 ætluðum við að fylgja íslandsmeist-
aratitlinum eftir en það gekk ekki og end-
aði liðið í 5. sæti. Síðan ætlaði liðið svo
sannarlega að gera betur síðatliðið sum-
ar og markmiðið var sett á titilinn, all-
ir ætluðu að standa sig. Ég held að við
höfum gert þau mistök að setja mark-
ið of hátt fyrir tímabilið og strax eftir
nokkrar fyrstu umferðirnar þegar á móti
blés sáum við að líklega værum við ekk-
ert að fara að ná titlinum. Takmarkið fjar-
aði í raun út snemma móts, við misst-
um móðinn, héldum ekki haus, og í raun
stóð þá ekkert eftir til að keppa að, þetta
er a.m.k. mín skýring á því hvers vegna
allt gekk á afturfótunum hjá okkur í sum-
ar. Við hreinlega gáfumst of snemma upp,
það voru stóru mistökin okkar. Það helsta
sem við getum lært af tímabilinu er að
halda haus þótt á móti blási, gefast ekki
upp. Mér fannst þjálfarnir allir standa sig
vel og ég hef lært mikið af þeim, Will-
um gerði frábæra hluti fyrir félagið og ég
lærði líka ýmislegt af Atla og Þorgrími,
þótt árangurinn í sumar tali öðru máli. Ég
held að það sé ekki hægt að kenna þjálf-
urunum sérstaklega um hvernig fór, það
er alltof einföld skýring að skella skuld-
inni á þá. Við ætluðum okkur að ná titl-
inum, en enduðum í 8. sæti og leikmenn
liðsins voru sammála því að árangurinn
hafi í sumar verið langt undir væntingum.
Mér finnst umfjöllunin í fjölmiðlum sýna
að farið er að líta á Val að nýju sem eitt
af stóru liðunum og í því Ijósi er neikvæð
umfjöllun fjölmiðla skiljanleg þar sem
miklar væntingar eru gerðar til liðsins,"
segir Atli sem greinilega hefur mikið velt
fyrir sér slöku gengi liðsins í sumar.
Líst vel á nýjan þjalfana
Gunnlaugur Jónsson, Skagamaður, var
í haust ráðinn nýr þjálfari til Vals, en
hann stýrði síðastliðið sumar Selfyssing-
um til sigurs í 1. deild sem leika á næsta
tímabili í fyrsta sinn í sögu félagsins í
efstu deild karla í fótbolta. Atla Sveini
líst mjög vel á nýja þjálfarann og þjálf-
arateymið allt. „Gunnlaugur kemur með
ferska vinda til félagsins, það er stutt síð-
64
Valsblaðið 2009