Valsblaðið - 01.05.2009, Síða 69
þjálfari. „Mín helstu markmið í starfi er
að gera hlutina vel og örugglega. Ég legg
ávallt metnað í það sem ég geri og reyni
svo að njóta þess,“ segir Rakel.
Mikil stráka —stelpa í æsku
„Ég held að ég hafi byrjað að æfa fót-
bolta af því að ég var svo mikil stráka-
stelpa og ég lék mér alltaf með strákum
og þeir voru alltaf í fótbolta. Ég byrj-
aði 9 ára að æfa fótbolta og ég man að
móðir mín var nú ekkert allt of sátt við
þetta en hún fékk víst litlu ráðið. Ég átti
heima í Kópavogi og byrjaði því að æfa
með Breiðabliki og var þar í 1 ár og flutti
svo í Vesturbæinn og var í skóla með
gallhörðum KR-ingum. Ég ákvað frek-
ar að fara í Val þar sem mér fannst KR-
ingar leiðinlegir og líka af því að Þóra
B. Helgadóttir landsliðsmarkvörður var
vinkona mín á þessum tíma og ég eigin-
lega elti hana. En það sem stendur upp
úr í yngri flokkunum í Val var í 3. flokki
þegar við unnum allt. Ragna Lóa Stef-
ánsdóttir var að þjálfa okkur og þetta var
eftirminnilegasta árið af öllum. Við vor-
um kallaðar rauða hraðlestin í einhverju
blaði og okkur þótti það ekkert smá gam-
an. Svo skemmdi ekki fyrir að hafa þjálf-
ara sem lék sjálf með meistaraflokki.
Hún var mikil fyrirmynd fyrir okkur.“
Rakel en mikill prakkari
í Val hefur Rakel kynnst sínum bestu
vinkonum „Ég, Laufey Ólafs og Ema
Erlends urðum bestu vinkonur í Val. Ég
held að við höfum hist á hverjum degi
í nokkur ár og alltaf náðum við að gera
eitthvað heimskulegt saman. Ég man að
einu sinni þá fómm við heim til þjálfar-
ans okkar, Ólafs Þ. Guðbjartssonar, og
vöfðum bílinn hans með spólufilmu og
klósettpappír. Hann var víst ekkert voða
sáttur með þetta daginn eftir þegar hann
vaknaði og ætlaði í vinnunna," segir
prakkarinn Rakel.
Það var mjög gaman að leika í
Eyjum
Rakel hefur leikið allan sinn feril hér á
landi í Val nema eitt sumar hélt hún á vit
ævintýranna og lék með ÍBV ásamt Lauf-
eyju Ólafs þegar Elísabet Gunnarsdótt-
ir þjálfaði liðið. „Það var mikil stemn-
ing í Eyjum og maður fann að öll eyjan
var alltaf að fylgjast með liðinu. Það var
mjög gaman að vera þarna þangað til að
Beta var látin fara. Hún er frábær þjálf-
ari og að mínu mati þá kunnu þeir ekki
að meta starfið sem hún vann þarna. En
að öðm leyti var frábær lífsreynsla að
vera í Eyjum og ég hef sjaldan átt eins
skemmtilegt sumar og þá.“
Hugarfar sigurvegarans er ríkjandi
íVal
Spurð um lykilinn að velgengni kvenna-
liðs Vals í fótbolta nefnir Rakel strax að
mikill metnaður sé í herbúðum liðsins
og þjálfunin sé fyrsta flokks. „Við emm
allar tilbúnar til að leggja mikið á okk-
ur, æfa aukalega, fórna ýmsu félagslegu
og því um líkt. Einnig höfum við skapað
jákvætt hugarfar sem er ríkjandi hjá okk-
ur, hugarfar sigurvegara. Við emm allar
sigurvegarar í þessu liði og ef nýr leik-
maður kemur inn í liðið leiðum við hana
í hugarfar sigurvegarans. Við gerum bara
það sem það þarf til að vinna, svo einfalt
sem það kann að hljóma,“ segir Rakel.
Púsluspil að þjálfa 2. flokk kvenna
Á undanförnum ámm hefur Rakel nýtt
menntun sína og reynslu og þjálfað yngri
flokka hjá Val. Hún þjálfaði um tíma
yngstu flokkana, bæði stelpur og stráka
með góðum árangri en er nú aðalþjálfari
2. flokks kvenna og landaði með þeim
Islandsmeistaratitli í sumar, í fyrsta sinn
frá 2001 og kann hún vel við þjálfara-
starfið. „Það að þjálfa 2. flokk getur ver-
ið mjög mikið púsluspil og allt þarf að
ganga upp til að vinna titilinn. Hópurinn
er alltaf tvískiptur og þarna eru leikmenn
sem æfa bara með 2. flokki auk leik-
manna sem æfa bara með meistaraflokki
en spila leikina með 2. flokki ef þeir em
ekki bundnir með meistaraflokki. Sum-
arið hjá 2. flokki gekk svona upp og
ofan en við töpuðum ekki einum leik og
það sýnir styrkleika liðsins og hvað við
emm heppin að eiga marga unga og efni-
lega leikmenn. Ég reyndi eftir bestu getu
að búa til þetta „winner“ hugarfar en 2.
flokkur kvenna hafði ekki unnið titil síð-
an 2001 þegar Dóra Stefáns og Dóra
María vom með liðinu. Ég er bara þann-
ig að ég þoli sjálf ekki að tapa og þeg-
ar stelpurnar koma á æfingu hjá mér þá
krefst ég þess að þær leggi sig fram og
geri hlutina almennilega, annars er ég
ekki sátt. Markmið fyrir næsta tímabil er
einfalt, að gera betur en á síðasta tíma-
bili. Við eigum enn eftir að vinna bikar-
inn og ég myndi vilja taka þetta tvöfalt
og ég er á þeirri skoðun að 2. flokk-
ur kvenna í Val sé um þessar mundir sá
besti á landinu,“ segir Rakel sannfær-
andi.
Freyr er frábær þjálfari
Rakel getur ekki leynt ánægju sinni með
Frey Alexanersson þjálfara sinn, eða
Freysa eins og hann er yfirleitt kallaður.
Valsblaðið 2009
69