Valsblaðið - 01.05.2009, Síða 96
Stefán Karlsson
framkvœmdastjóri hafði
þetta að segja um Valsmenn
hf. „Samstarf okkar við
Valsmenn hefur verið mikið
og gott,félagið hefur verið
ómetanlegur bakhjarl fyrir
Knattspyrnufélagið Val.
Sameiginlegu markmið og
hagsmunir okkar liggja í
uppbyggingu svœðisins í kring
og hugsjóninni um enn betra og
öflugra félag. Ahugi stjórnarmanna í Valsmönnum áframgangi Vals er mikill
og ósvikinn.“ Sigurður Eggertsson leikmaður í meistaraflokki í handbolta er
með honum á myndinni.
Kaupin voru erfið í fæðingu. Fyrsta til-
boði okkar var hafnað af þeirri ástæðu að
borgin vildi setja söluna í almennt útboð
og eins höfðu borist fréttir af hækk-
uðu lóðaverði á fasteignamarkaði. Það
má því segja að tímasetningin hafi verið
mjög góð fyrir Raykjavíkurborg því eft-
irspurn eftir lóðum var að stóraukast á
þessum tíma en framboð hins vegar mjög
takmarkað. Stjórn Valsmanna hf. tók því
ákvörðun um að hækka tilboð sitt sem
leiddi til þess að því var á endanum tek-
ið og skrifað undir bindandi kauptilboð
á gamlársdag 2004. Með þessum kaup-
um má segja að allt umhverfi félagsins
hafi breyst, umsvifin stóraukist, skuld-
bindingar margfaldast og ný tækifæri
skapast. Þann 11. maí 2005 var geng-
ið frá endanlegum kaupsamningi á fimm
byggingarlóðum þar sem byggja mátti
25.000 fermetra af húsnæði. Kaupverð-
ið var 870.452.843 kr. og fyrsta greiðsla
að fjárhæð kr. 485.060.000,- var greidd.
Gerður var mjög hagkvæmur fjármögn-
unarsamningur við Frjálsa fjárfesting-
arbankan sem Valsmenn hf. áttu síðan
mjög gott samstarf við allt fram að hruni
bankakerfisins.
Frásögn af öllum þeim samningum,
frestunum, töfum, breytingum og gjörn-
ingum sem átt hafa sér stað á þeim fimm
árum sem liðin eru frá upphafi þessa
máls, er í raun efni í heila bók. En það
sem lýsir málinu kannski best er að þær
byggingarlóðir sem áttu að afhendast
okkur tilbúnar til byggingarframkvæmda
í septembermánuði 2005 hafa enn ekki
verið afhentar okkur af seljanda, sem er
Reykjavíkurborg. Þess í stað hafa með
jöfnu millibili verið gerðir nýir samn-
ingar við Reykjavíkurborg þar sem fram
koma nýjar dagsetningar og ný loforð
um efndir. Sumarið 2008 var enn einu
sinni gengið til samninga og þá sá borgin
að hún átti ekki aðra úrkosti en að semja
við félagið um greiðslu tafbóta sem getið
var um í samningi frá 4. apríl 2006 auk
þess að bæta félaginu annan sannanlegan
skaða ef komast átti hjá skaðabótamáli.
Allir samningar félagsins hafa ver-
ið þríhliða, þ.e. milli Valsmanna hf.,
Reykjavíkurborgar og Knattspyrnu-
félagsins Vals, þar sem verið var að eiga
viðskipti með erfðafestuland Vals og eins
og áður sagði átti söluandvirðið að ganga
til uppbyggingar á Hlíðarenda. Það var
því stór dagur þann 11. maí 2005 þeg-
ar allar skuldir Vals voru greiddar upp
og félagið varð skuldlaust í fyrsta sinn
í langan tíma. Þannig er staðan í dag og
verður vonandi um alla framtíð.
Aðkoman að Hlíðarenda verður
stórbætt á næstunni
Þann 15. júlí sl. var síðasti samning-
ur þessara aðila undirritaður. Fyrir utan
venjubundin samningsatriði ef svo má
að orði komast eins og að ákveða hvenær
endanlegt deiliskipulag skuli frágengið
var í þessum samningi samið um mjög
veigamikið hagsmunaatriði fyrir Val,
sem er heimtröðin að Hlíðarenda. Segja
má að félagið hafi aldrei haft almenni-
lega aðkomu að félagssvæðinu en á því
hefur, þegar þessi grein mun birtast, orð-
ið mikil breyting. En það fyrirkomulag
sem er á þessari framkvæmd náðist ekki
baráttulaust. Bæði forráðamenn Vals og
Valsmanna hf. urðu að beita sér af krafti
fyrir því að eðlilegra hagsmuna Vals væri
gætt í þessari framkvæmd. Um þetta
segir m.a. í samningnum: „í fyrirliggj-
andi tillögum að hönnun Hlíðarfótar, sbr.
Róbert Jónsson er ánœgður með stuðn-
ing Valsmanna hf. við félagið sl. 10 ár.
fylgiskjal merkt A, hefur Reykjavíkur-
borg skuldbundið sig til að gera ráð fyr-
ir að- og fráreinum í hægri beygju, utan
umferðarljósa til vesturs frá athafnasvæði
Knattspyrnufélagsins Vals að Hlíðarenda.
Að auki skuldbindur Reykjavíkurborg
sig til þess að láta gera önnur gatnamót
á Hlíðarfæti, á milli þessara gatnamóta
og gatnamóta við Hringbraut. Mark-
miðið með þeim er að létta á álagi nýrra
gatnamóta að Hlíðarenda. Reykjavíkur-
borg skuldbindur sig til þess að skipu-
leggja undirgöng fyrir gangandi umferð
sem tengi Hlíðarendareit og Valssvæðið
við Öskjuhlíð. Vegna þeirrar miklu rösk-
unar sem verða á og umhverfis athafiia-
svæði Knattspymufélagsins Vals á með-
an á uppbyggingu Hlíðarfótar stendur
skal Reykjavíkurborg gera bráðabirgða-
bflastæði sem verða nýtt meðan á fram-
kvæmdum stendur og fram til þess tíma
er uppbygging á byggingarsvæði Vals-
manna hf. hefst. Staðsetning bflastæð-
anna skal vera suðvestan við núverandi
æfinga- og gervigrasvöll að Hlíðarenda.
Gert er ráð fyrir að bráðabirgðabflastæði
þetta rúmi allt að 300 bfla og verði yfir-
borð þess úr viðeigandi möl.“
Rétt ákvörðun að kaupa
byggingarland næst Hlíðarenda
Það má því segja að tíminn hafi leitt í ljós
að það var rétt ákvörðun að kaupa bygg-
ingarlandið næst Hlíðarenda og geta með
beinum hætti haft áhrif á hvernig skipu-
lagi og uppbyggingu þess verður hátt-
að. f allri vinnu Valsmanna hf. við skipu-
96
Valsblaðið 2009