Valsblaðið - 01.05.2009, Síða 65
„Mér finnst eðlilegt að stuðningsmenn Vals
gerí miklar kröfur til liðsins, “ segirAtli.
an hann var farsæll leikmaður og það
finnst mér kostur. Hann hefur reyndar
ekki mikla reynslu sem þjálfari, en hann
gerði frábæra hluti á Selfossi, en á örugg-
lega eftir að komast að því fyrr en síðar
að það er ekki það sama að þjálfa Val og
Selfoss myndi ég halda, en ég hef fulla
trú á því að hann muni standa sig vel og
ekki spillir fyrir reynsla hans sem leik-
maður,“ segir Atli.
Hvarflaði aldrei að mér að hætta
eftir síðasta tímabil
Atli Sveinn segir að síðasta tímabil hafi
verið gríðarlega erfitt en þó segir hann
að æfingamar hafi veið skemmtilegar
og góður mórall í hópnum, en samt hafi
ekkert gengið í leikjunum. „Tímabilið
var mjög lærdómsríkt og ég held að þetta
ár hjálpi okkur fyrir næsta tímabil, okkur
var hreinlega kippt niður á jörðina. Við
þurfum svo sannarlega að sanna okkur
að nýju, bæði fyrir sjálfum okkur, þjálf-
urum, stuðningsmönnum Vals og einn-
ig fótboltaheiminum á íslandi eftir þessi
tvö síðustu mögm tímabil. Ég held að
mikilvægast sé fyrir okkur að sanna fyrir
sjálfum okkur að við eigum heima með-
al þeirra allra bestu þar sem við gerðum
það svo sannarlega ekki á síðasta tíma-
bili, urðum nánast að athlægi. Mig langar
að sanna mig að nýju sem fótboltamaður
en síðasta tímabil lagðist nokkuð á sálina
hjá okkur öllum og við þurfum allir sem
einn að rísa upp að nýju. Þetta allt hef-
ur vissulega þroskað mann sem persónu
en þó skil ég ekki af hverju menn þurfi
að læra að tapa, sjáðu t.d. Ryan Giggs
og Paul Scholes, þeir hafa unnið allt og
ég sé ekki að þeir hafi þurft að lenda í 8.
sæti í ensku deildinni með Man Utd til
að verða góðir leikmenn, þeir eru frekar
fæddir sigurvegarar," segir Atli og brosir.
Engir draumar um frekari atvinnu-
mennsku eða landsiiðssæti
Hjá Atla er aðalmálið núna að einbeita
sér að næsta tímabili hjá Val, og hann
segist ekkert vera að velta fyrir sér frek-
ari atvinnumennsku. „Það er mikil hætta
á því að ef maður er of mikið að hugsa
um mögulega atvinnumennsku erlendis
þá gleymi menn að einbeita sér að verk-
efnum hér heima. Ef það gengur vel og
rétta tækifærið býðst þá er aldrei að vita,
en ég er ekkert að pæla núna í atvinnu-
mennsku," segir Atli. „Það sama er með
landsliðið, en ég hef tekið þátt í nokkr-
um landsleikjum en hef undanfarið ekk-
ert verið með í þeirri mynd. Þar gild-
ir það sama og með atvinnumennskuna,
fyrst er að sanna sig að nýju með Val og
þar liggur nú metnaður minn. Það var
vissulega gaman að vera með í lands-
liðshópnum og þegar Val gekk sem best
fyrir tveimur árum þá voru 6 Valsmenn í
hópnum, auk mín voru Pálmi Rafn, Birk-
ir Már, Baldur Ingimar, Bjami Ólafur og
Kjartan Sturlu,“ segir Atli.
Öflugt kvennalið Vals styrkir
felagið mikið
Atla finnst það styrkja félagið mikið að
hafa öflugt kvennalið í fótbolta og hann
er mjög stoltur af stelpunum sem séu
flottar fyrirmyndir fyrir unga iðkendur
og þær hafa í raun haldið merki félagsins
uppi í fótbolta og styrkt félagið mikið.
„Mér finnst frábært að fylgjast með stelp-
unum og við strákamir getum lært heil-
mikið af þeim, t.d. finnst mér þær vera
mun duglegri að virkja hverfið og tengj-
ast betur yngri flokkunum og mér finnst
líka athyglisvert hversu margar ungar
stelpur em að æfa fótbolta með Val með
frábæmm árangri. Við strákarnir gætum
verið sýnilegri í félagsstarfinu, t.d. kynnt
fótbolta í skólunum, fylgst með æfingum
og aðstoðað krakkana eftir því sem við
getum, en árangursríkast er að mínu mati
að ná góðum árangri á vellinum og vera
góðar fyrirmyndir fyrir krakkana," segir
Atli eftir nokkra umhugsun.
Valur er felag með ríka sögu og
hefð
„Ég finn vel fyrir þessari miklu sögu
sem er í Val og finnst gaman hversu vel
félagið ræktar hana, t.d. með upplýs-
ingum í Valsheimilinu á veggjum, með
styttu af sr. Friðrik, Friðrikskapellu,
Valsblaðinu og samkomum hjá Val. Að
mínu mati er Valur stórveldi í boltaíþrótt-
um, með mikla sigurhefð, sérstaklega
í fótbolta og handbolta, bæði karla og
kvenna og karfan er líka mikilvæg þótt
þar sé ekki eins rík hefð. Það hefur verið
frábært fyrir mig að vera í Val öll þessi
fimm ár allt frá fyrstu mínútu og mér
hefur liðið vel á Hlíðarenda og ég er orð-
inn mikill Valsari, rauður í gegn,“ segir
Atli að lokum og brosir.
Kjartan Sturlu markmaður fagnar
með Atla Sveini bikarmeistaratitli
með Val 2005 eftir 1-0 sigur á Fram.
Atli var fyrir leik með stóra kúlu á
höfðinu en í leiknum tóku meiðslin
sig upp og hann fékk heilahristing og
það blœddi úr höfðinu. Atli var bara
vafinn í hálfleik og hann hélt áfram
til leiksloka. Eftir leikinn kom í Ijós
að hann hafði fengið heilahristing
við höggið en kappið var það mikið
að áfram var haldið til leiksloka, en
Atli man ekkert eftir seinni hálfleik og
hann missti affagnaðarlátunum og
verðlaunaafhendingu þar sem farið
var beint með hann upp á slysavarð-
stofu.
Valsblaðið 2009
65