Valsblaðið - 01.05.2009, Page 10
Hugvekja á jólaföstu 2009
Valshjartað slær
Einn mikilvægasti þáttur í starfsemi Knattspymufélagsins Vals
er að vera frjór jarðvegur til að skapa vinabönd. Þegar menn
glíma sameiginlega við andstæðing á leikvelli lærist þeim að
samtakamáttur hópsins er sterkari, en hver og einn fær áorkað.
Þegar glaðst er yfir góðum sigri eða tekist á við tap, þá skap-
ast oftar en ekki sterk vinátta meðal einstaklinga innan hópsins,
Valsneisti kviknar í brjósti og Knattspyrnufélagið Valur verður
merkið, sem allir eru stoltir að keppa fyrir.
Innan vébanda Vals hafa orðið til sterkir vinahópar í gegnum
árin, oftar en ekki sprottnir úr sigursælum afreksliðum félags-
ins. Þessir hópar hafa ræktað vinaböndin áfram eftir að keppnis-
ferli hefur lokið og þroskast hefur ævilöng vinátta milli einstak-
linga í þessum hópum.
Þessir vinahópar skapa mikilvægt tengslanet Valsmanna og
eru um leið kjölfesta í félagslegri tilvist Knattspymufélagsins
Vals. Hjá þeim og öðmm Valsmönnum slær Valshjartað.
Glæsileg aðstaða til iðkunar keppnisgreina Vals hefur verið
sköpuð að Hlíðarenda og nú þegar líður að aldarafmæli félags-
ins er mikilvægara en nokkru sinni að hlúa að og efla hinn
félagslega og mannlega þátt í starfsemi Vals. Það er meginverk-
efni forystumanna Vals að drengir og stúlkur flykkist að Hlíðar-
enda til að efla sig og styrkja í hollum leik með góðum félögum.
Valur verður að vera síungur og fullur af fjöri og umfram
allt að vera áfram frjór jarðvegur nýrra vinabanda auk þess að
kveikja Valsneista í brjóstum ungra iðkenda. I þessum hópi leyn-
ast framtíðarafreksmenn og -konur Vals og hjá þeim mun Vals-
hjartað slá áfram. Valur má aldrei verða félag fomrar frægðar.
Háleit mannræktarmarkmið sr. Friðriks Friðrikssonar hafa
ætíð skipað ríkan sess meðal okkar Valsmanna. „Látið aldrei
kappið bera fegurðina ofurliði" sagði sr. Friðrik. Á þeim tímum,
sem við lifum nú, er mikilvægara en nokkm sinni að við Vals-
menn stöndum vörð um þau verðmæti sem felast í að vera félagi
í Val og að setja manngildi ofar auðgildi.
Með óskum um gleðileg jól og farsœlt komandi ár.
Grímur Sœmundsen
Valsneistinn er kviknaður
Valsmenn eru bestir!
Valsvinkonur f 3.fl. kvenna að
störfum á heimaleik s.l. sumar.
Ki. ‘ áfömwJP*.