Valsblaðið - 01.05.2009, Page 20

Valsblaðið - 01.05.2009, Page 20
Hver er Valsmaðurinn? í 4. flokk, kennir þeim æfingar þar sem eingöngu er unnið með eigin líkams- þyngd og að þessi aðili vinni síðan í nánu samvinnu við aðra þjálfara varðandi upp- byggingu leikmanna. Þessi þjálfari á allt- af að vera til staðar, skrá allt sem iðk- endur gera, kennir jafnvel hlaupatækni og svo framvegis. Með þessum hætti er hægt að fylgjast með „æfingasögu“ hvers og eins. Við tölum dálítið mikið um þetta en ég trúi því að þetta verði að veruleika fyrr en síðar. Ég vil sjá það sama að Hlíðarenda og í Vatnaskógi þar sem verið er að keppa um ákveðinn tíma í brekkuhlaupum og fleiru. Það væri gaman ef skráðir væru bestu tímamir í háskólahlaupi, sem margir þekkja, og að menn reyndu að bæta það. Ég myndi vilja sjá menn keppa um besta tímann í sprettum upp hitaveitustokk- inn, Öskjuhlíðarhlaup, flestar armbeygj- ur, upphífur og svo framvegis. Þetta yrði hvetjandi fyrir iðkendur sem vildu að sjálfsögðu bera sig saman við þá sem eru bestir í þessum hliðargreinum, sem eru ákveðinn undirstaða. Ég myndi vilja að Valur gerði ákveðnar kröfur til líkamlegs atgervis leikmanna. Hver vill ekki bera sig saman við Ólaf Stefánsson í einhverjum greinum? Svona upplýsingar mætti hengja upp á vegg hjá Val, öðrum til hvatningar um að slá met þekktra leikmanna. Valur er með rauðan þráð í starf- inu og við þurfum að kenna þjálfurum Vals að nýta hann betur. Við þurfum að fjölga æfingum í hverjum flokki, vera með æfingar á DVD diskum sem íþrótta- iðkendur geta fengið svo þeir viti hvað þeir eiga að vera búnir að læra í hverjum flokki. Við eigum að skipuleggja hvern- ig við vinnum með félagsþroska, liðs- heild, leiðtogaþjálfun, hugarþjálfun og svo mætti lengi telja. Þjálfarnir verða að vera mjög leitandi svo að þetta nái allt fram að ganga. Þegar öllu er á botninn hvolft skipt- ir öllu máli hverjir eru að þjálfa hjá félaginu. Þeir þurfa að elska starfið sitt og eldmóðurinn þarf að skína úr aug- um þeirra. Við höfum verið heppnir með marga þjálfara sem hafa verið flottar fyr- irmyndir. í handboltanum höfðum við Boris sem kenndi ákveðna tækni, síðan Magga Blöndal, Theodor, Tobba, Geir, Valda og fleiri en í fótboltanum höfum við verið sérstaklega heppin í kvenna- flokkunum. Við höfðum Elísabetu Gunn- arsdóttur sem bjó ekki bara til góða leik- menn, heldur líka „litlar Betur“ sem tóku við af henni í þjálfun og unnu á svipuð- um nótum, félagslega og tæknilega. Fót- boltinn karla megin hefur reyndar bætt sig gríðarlega síðustu 10 árin og loksins eru þjálfaramálin í yngri flokkunum að komast í gott horf. í öllum greinum hjá Val þurfum við að búa til miklu fleiri frá- bæra þjálfara. Ég elska að vera að Hlíðarenda og öll fjölskyldan unir sér hvergi betur en hér. Svona vil ég að öllum Valsmönnum eigi að líða. Það er draumur margra í félaginu að geta komið hingað og fundið ýmislegt við sitt hæfí, spila bridds, horfa á fótbolta, gera eitthvað saman í Lollastúku. Það er ekki nóg að búa til nýja Óla Stef eða Guðna Bergs, heldur þurfum við að búa til enn sterkari félagsmenn og það gerum við með enn öflugra starfi. Ég sjálfur get gert miklu betur í þessum efnum. Þegar ég starfaði sem íþróttafulltrúi Vals var einstaklega gaman að vinna með Ágústi Björgvinssyni og Elísabetu Gunn- arsdóttur. Þorlákur Árnason átti góð- ar stundir með okkur. Þarna voru grein- arnar þrjár í góðu samstarfi og þetta fólk, auk mín, ætti að vera í fullu starfi við að sinna yngri flokkunum. Ekki meistara- flokki. Þótt ég telji mig einn af hæfustu þjálfurum í meistaraflokki ætti ég miklu frekar að einbeita mér að yngri iðkend- um. Við þrjú skiptumst á skoðunum endalaust enda vorum við miklu meira en þjálfarar, við bárum hag iðkenda fyr- ir brjósti og fylgdumst með hvernig gekk í skólanum og heimafyrir. Boris gamli er endalaust að hvetja mig til að sinna ung- viðinu því hann segir að ég viti aldrei hvenær ég missi lykilmenn í meistara- flokki í burtu. Hann vill endalausar sér- æfingar sem skila vitanlega frábærum árangri. Þetta lærði ég hjá honum, Tobba og Theodori." Fjölskylda Óskar Bjarna telur sex manns en auk hans og Ömu eru það Am- ór Snær 9 ára, Benedikt Gunnar 7 ára, Katla Margrét 2 ára og Laufey Helga Óskarsdóttir 2 mánaða. Óskar og Ama giftu sig 4. júlí síðastliðinn en þau héldu sameiginlegt brúðkaup með Tedda og Auði en eins og allir vita er Teddi einn af starfsmönnum Vals. „Við Teddi spiluðum saman í gegn- um alla yngri flokkana, höfum ávallt ver- ið bestu vinir, þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að taka sama dag- inn í þetta. Eiginkonur okkar vom báð- ar í Gerplu, í kvennó og saumó og þar fyrir utan eigum við sameiginlega vini. Það var því heppilegt að láta pússa okkur saman hlið við hlið. Brúðkaupið var eft- irminnilegt enda fór presturinn á kostum og fjöldi vina tróð upp í veislunni. Stebbi Hilmars tók lagið, Bjarki Sig tók Michael Jackson, Stefán æskuvinur og tenór söng líka og gaf tóninn varðandi framtíð Vals og okkar sem verður ein sigurganga." Michael Jackson dansar Break | Freestyle | Mambó Salsa | Brúðarvals Hiphop | Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámskeið fyrir hópa Börn - Unglingar - Fullorðnir DANSSKÓLI Jóns Péturs og Köru Dansfélag Reykjavíkur l Ýmis starfsmanna,- stéttar- og sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiöa. Dansráð Islands | Faglærðir danskennarar Valsheimilið Hllðarenda | 101 Reykjavfk | Slmi 553 6645 | dans@dansskoli.is | www.dansskoli.is 20 Valsblaðið 2009
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.