Valsblaðið - 01.05.2009, Page 32

Valsblaðið - 01.05.2009, Page 32
MottóAra: Leggja mitt af mörkum og gera mitt besta. um hjá ykkur? Ari er ekki neinum vafa með það: „ Hápunktur minn er úrslita- viðureignin með Val við Keflavík 1992, þá búnir að slá út ósigrandi lið Njarð- víkur. Upplifunin að koma inn í íþrótta- húsið klukkutíma fyrir leik og húsið fullt af áhorfendum var mögnuð tilfinning," segir Ari. Yngvi segist eiga margar góð- ar minningar frá ferlinum. „Maður hef- ur upplifað sigra og sorgir í þessu eins og öðru en fyrsti og eini titillinn með Val er ógleymanlegur, Reykjavíkurmeist- ari í Hagaskóla eftir sigur gegn ÍR 114— 29. Hópurinn var ótrúlega öflugur hjá okkur, t. a. m.voru Ragnar Steinsson og Ægir Hrafn Jónsson, sem var seinna val- inn efnilegasti leikmaður úrvalsdeildar- innar ekki alltaf í A-liðinu, það segir allt sem segja þarf um styrk flokksins. Ann- ars átti ég mikilli velgengni að fagna hjá frændum vorum í Haukum og er íslands- meistaratitillinn 2009 með stelpunum þar án efa hápunktur ferilsins enn sem komið er,“ segir Yngvi. Hvernig er að koma aftur í Val? Báð- ir eru þeir Yngvi og Ari ánægðir að vera komnir heim og Yngvi segir:„Þegar kall- ið kom og Valur vildi fá mig heim þá var allt annað formsatriði. Ég verð að viður- kenna að ég brosti allan hringinn þegar ég tók beygjuna niður að Hlíðarenda og það er ekkert sem jafnast á við að þjálfa félagið sem stendur manni svo nærri hjartanu. Ég vil leggja lóð mín á vogar- skálarnar og hjálpa til við koma körfunni á þann stall sem hún á skilið.“ Ari tekur undir þetta og segir: „Það er frábært að vera kominn aftur heim á Hlíð- arenda. Það hefur ýmislegt breyst og þá flest til batnaðar. Aðstaðan hér er til fyrirmyndar og sú allra flottasta á landinu. Stefna mín hefur alltaf verið sú að koma aftur á Hlíðarenda að þjálfa og í vor gafst mér færi á því sem ég greip.“ Hvaða markmið setjið þið fyrir meistaraflokkana og hvaða kröfur eru raunhœfar í vetur? Þeir segjast báðir hafa mjög breytta hópa frá fyrra tímabili. Yngvi segir: „Margir af strákunum sem voru þá eru hættir og því þurfti að byggja upp nýtt lið frá grunni. Endur- nýjunin tókst framar vonum og er ég í skýjunum með hvernig til tókst. Við erum með blöndu af ungum og efnilegum leik- mönnum auk manna sem hafa átt góðu gengi að fagna hjá sín- um uppeldisfélögum. Allir þess- ir strákar fagna þeirri áskorun að koma Val upp um deild enda væri allt annað óeðlilegt. Annars þarf liðið að fá tíma til að slípast saman og byggist það á þolinmæði og Ieikgleði.“ Ari segir að hópurinn samanstandi af tiltölulega nýju liði. „Miklar breytingar hafa átt sér stað í liðinu frá því á síðasta tímabili. Mark- mið okkar er að komast í úrslitakeppnina og teljum við þau markmið vel raunhæf," segir hann. Hvernig viljið þið byggja upp körf- una hjá Val á nœstum árum? Ari segir að til að laða að sem flesta krakka þurfi að hafa góð- ar fyrirmyndir, gott lið og góða meistaraflokka. „Það þarf að vera markviss þjálfun hjá yngri flokkunum sem kemur von- andi með ráðningu Lýðs sem yfirþjálfara yngri flokka. Valur ætti að bjóða upp á rútuferðir í nálæga skóla til að sækja til sín fleiri krakka. Strætósamgöngur í kringum Hlíðarenda eru ekki góðar og gerir það krökkum erfitt fyrir að koma á æfingar. Ekki eru mörg félög í Reykja- vík sem hafa körfuboltadeildir og ætti Valur því að eiga góða möguleika á að fá til sín fullt af krökkum" segir Ari. Yngvi tekur undir þetta og segir; „Við þurfum að búa til nýjar hetjur, ala upp leikmenn með aga og metnað sem vilja ná í fremstu röð með Val og engum öðrum. Krakka sem bera virðingu fyrir merki félagsins og sögu og sætta sig einungis við að vera í toppbar- áttu með Val. Uppbygging tekur tíma, en með góðum árangri er alltaf auðveldara að ná til barna. Þess vegna skiptir máli að báðir meistaraflokkarnir spili í deild þeirra bestu.“ Hvernig líst ykkur á yngri flokkana í körfunni, bœði í karla og kvenna? Yngvi segir: „Það er sérstaklega ánægjulegt að Valur haldi úti starfi fyrir bæði kynin. Það eru margir efnilegir iðkendur en við þurfum fleiri. Of fáir eru í sumum flokk- um og nauðsynlegt að fjölga iðkendum. Ég bind miklar vonir við nýráðinn yfir- þjálfara yngri flokka Lýð Vignisson, all- ar forsendur eru fyrir hendi, aðstaðan, staðsetningin og metnaðarfullir þjálfar- ar.“ Ari tekur undir þetta og segir að hon- um finnist verulega þurfa að auka þátt- töku stelpna. Vinnið þið Ari saman sem þjálfar- ar, hvernig eru tengslin milli meistara- flokks karla og kvenna í körfu? Ari segir: „Við Yngvi eigum mikil samskipti varð- andi körfuna og leggjum ýmislegt und- ir hvorn annan. Samskiptin á milli meist- araflokkanna er fín en mætti vera meiri á milli leikmanna." Yngvi tekur undir þetta en honum finnst þó að leikmenn liðanna fylgist vel með gangi hvors annars og hvetji til dáða. Mottó Yngva: Reyndu að vera betri í dag en í gœr. Lœrðu eins og þú munt lifa að eilífu en lifðu eins og þú munt deyja á morgun. 32 Valsblaðið 2009
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.