Valsblaðið - 01.05.2009, Side 73

Valsblaðið - 01.05.2009, Side 73
Notaðir Valsbúningar ganga aftur í Kraftaverkaklúbbnum í Malaví Eftir Benediktu Guðrúnu Sævansdóttur Haustið 2008 lögðu Benedikta Guð- rún Svavarsdóttir og Guðbjörg Berg- mundsdóttir hjúkrunarfræðingar af stað til Malaví í sjálfboðastarf á vegum Hjálparstarfs Kirkjunnar. Upphailega markmiðið var að vinna á heilsugæslu í litlu þorpi en vegna lítilla anna þar og síðan lokunar á heilsugæslunni tók lífið í þorpinu aðra og áhugaverða stefnu. Gömlu góðu dagamir hjá Val skiluðu sér margfalt til baka þegar ég kynntist glað- lyndu börnunum í Madisi. Boltinn byrj- aði að rúlla um leið og ég festi kaup á fyrsta fótboltanum og byrjaði að leika mér með krökkunum fyrir utan heima. Áður en langt um leið var ég búin að útvega fjóra bolta og farin að skipuleggja æfingar eins og ég þekkti frá æskuárun- um með Val. Strákarnir tóku þessu fagn- andi og hvern virkan eftirmiðdag hittumst við fyrir utan heilsugæsluna, þeir fengu bönd í mismunandi litum sem skipti þeim í lið og að tækniæfingum loknum spiluðu liðin og svo endaði æfingin með góðum teygjuæfingum. Á meðan á æfingunum stóð sinnti Guðbjörg yngstu kynslóðinni með leikjum og hókí pókí náði sérstök- um vinsældum meðal þeirra. Mikill stuðningur frá íslandi í miðri kreppunni íslenskir stórhugar létu sér þetta ekki nægja og langaði okkur að gera eitthvað meira. Þrátt fyrir ekkert nema krepputal frá heimalandinu fagra sendum við bréf til vina og vandamanna þar sem við báð- um um stuðning til að byggja upp leik- völl og íþróttaaðstöðu. Þar að auki bað ég bróður minn um að athuga með bún- inga og sagði honum að sjálfsögðu að byrja á því að spyrja hjá gamla félaginu mínu Val. Það voru ekki lengi að berast jákvæð svör úr herbúðum Vals og fljótt fékk ég tölvupóst frá mínum gamla þjálf- ara Ragnhildi Skúladóttur um að tíma- setningin hefði ekki getað verið betri, nýbúið að finna fullt af gömlum bún- ingum sem vantaði nýtt líf. Rauði kross- inn skellti skóm, stuttbuxum og öðr- um íþróttabúnaði í pakkann, adidas gaf glæsilega bolta sem og síminn, puma styrkti með glænýjum flottum æfinga- treyjum. TNT sendi síðan þennan flotta pakka yfir hnöttinn. Á meðan að pakk- inn var í loftinu hófum við uppbyggingu á vallarsvæðum og til urðu fótboltamörk, netballkörfur, blakstangir og leikvöllur. Hópur ungs fólks innan kirkjunnar tók við íþróttafélaginu og skipuð var nefnd og þjálfarar innan þess hóps. The Miracles Sportsclub í Malaví eða Kraftaverkin leika í flottum Valsbúningum Þegar allt var að verða klárt barst himna- sendingin okkur eins og rúsínan í pylsu- endanum og ekkert eðlilegra en að blása til veislu og formlega stofna félagið „The Miracles Sportsclub" eða „Kraftaverk- in“. Til höfðu orðið tvö fótbolta- lið og tvö netballlið og nóg var af búningum á alla, þjálfararn- ir fengu líka utanyfirgalla. Það var nánast eins og einhver fugl hefði hvíslað yfir Öskjuhlíð- ina hvað okkur vantaði því þetta hefði ekki getað passað mikið betur. Það er ógjörningur að koma því í orð hvernig upplifunin var að fylgjast með þeim fara í búningana í fyrsta sinn. Þau trylltust gjörsamlega af gleði og þeim fannst þau svo flott að horfa á stolta strákana okkar labba út í nýju Valsbúningunum var sýn sem við gleymum aldrei. Opnunarhátíðin gekk eins og í sögu og þjálfararnir leiddu hver sitt lið að hátíðinni í söng. Að gam- alli „Vals“ fyrirmynd báðum við þjálfar- ana að velja besta leikmanninn og björt- ustu vonina í hverju liði auk þess sem allir leikmenn voru leystir út með nýj- um bol eða biöðrum. Hátíðinni lauk síð- an með fótboltaleik þar sem Kraftaverk- in rúlluðu upp nágrannaliði sem sótti þá heim. Þetta var einstakur dagur sem mun lifa með okkur alla tíð. Valur pladdi hjörtu baruanna í Madisi Það er nokkuð víst að Valur gladdi hjörtu barnanna í Madisi með þessari góðu gjöf og sendum við að lokum innilegar þakkir frá okkur öllum. Fyrir hönd Kraftaverkanna, Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Valsblaðið 2009 73
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.