Valsblaðið - 01.05.2009, Qupperneq 80

Valsblaðið - 01.05.2009, Qupperneq 80
Berglind með góðum Valsfélaga Hafrúnu Kristjánsdóttur eftir landsleik. hef í raun ekki sett mér nein frekari mark- mið um atvinnumennsku, mér hefur verið sýndur áhugi frá liðum erlendis en aðstæð- ur hafa ekki verið alveg nógu heppilegar til að ég hafi ákveðið að slá til.“ Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki til að ná einbeitingu? „Það er í raun bara þetta klassíska, ég hugsa vel um mataræðið og hvíldina, reyni að borða hollan og góðan mat og fara snemma að sofa fyrir leiki. Ég skoða stundum myndbönd af andstæðingunum og reyni að kortleggja skotin þeirra. Á leikdegi hvíli ég mig alltaf í klukkustund fyrir leiki þar sem ég einbeiti mér ein- göngu að leiknum, en annars er ég ekki með neina ákveðna rútínu fyrir hvern leik, fer í raun bara eftir því hvemig mér líður hverju sinni.“ Hvernig finnst þér umgjörðin vera í handboltanum hjá Val? „Umgjörðin er mjög góð að mínu mati, það er hugsað einstaklega vel um okkur og er allur aðbúnaður 100% og em allir alltaf tilbúnir að gera betur. Þjálfarinn og teymið hans, þ.e. Jói Lange, Valli og Við- ar em topp klassa menn. Stjórnin og all- ir starfsmenn Vals eiga mikið hrós skilið fyrir flott starf. Stuðningsmennirnir okk- ar em klárlega þeir bestu og eiga hvflikt hrós skilið, mæta á alla leiki og láta enda- laust mikið í sér heyra, sama hver staðan er og em algjörlega ómissandi. Auðvit- að viljum við samt fá fleira fólk á leik- ina, en þeir sem koma em frábærir. Svo þegar Baldur bongó og sambasveitin hans mætir þá toppar ekkert þá stemningu. Það vinna margir í kringum okkur mjög óeig- ingjarnt starf í sjálfboðavinnu og án þeirra væri þessi flotta umgjörð og flotta stemn- ing sem oft myndast ekki til staðar." Skemmtilent að komast með landsliði UZO ára í lokakeppni HM til Kína „Ég hef tekið þátt í mörgum skemmtileg- um verkefnum með landsliðinu og er erf- Gengið á Esjuna með kvennalandsliðinu í handbolta. og getan er til staðar, þannig að vonandi mun okkur takast að komast á EM.“ Nú hefur þú séð mikla breytingu á allri aðstöðu á Hlíðarenda. Hvaða máli telur þú að það skipti fyrir starfið hjá félaginu? „Aðstaðan á Hlíðarenda er rosalega flott og frábært að fá að æfa í jafn glæsilegri höll. í dag er hægt að bjóða iðkendum upp á topp aðstöðu í handbolta, fótbolta og körfubolta. Hægt er að bjóða flokk- um upp á betri æfingatíma þar sem fleiri flokkar geta verið að æfa í einu og hægt er að taka á móti fleiri iðkendum. Gervi- grasvöllurinn hefur auk þess breytt miklu fyrir fótboltann og í framtíðinni verð- ur frábært að fá yfirbyggðan völl. Með þessari flottu aðstöðu er hægt að bjóða öllum að æfa á Valssvæðinu í stað þess að dreifa æfingum um íþróttasali og velli í borginni. Valsheimilið er orðið að eins konar miðstöð með frábærum anda, þar er einnig flott aðstaða fyrir foreldra til að fylgjast með æfingum hjá börnunum og einnig er góð aðstaða fyrir félagsleg verkefni. Þessi flotta aðstaða laðar von- andi fleiri iðkendur til félagsins. Aðstað- an er einnig mjög flott fyrir áhorfend- ur bæði inni í Vodafonehöllinni og úti á Vodafonevellinum og vonandi að Valsar- ar nær og fjær nýti sér það og mæti vel á völlinn til að styðja Val, því jákvæður stuðningur áhorfenda getur skipt sköp- um. Svo er auðvitað æðislegt að hafa heita potta í klefum, eitthvað sem okk- ur stelpunum hefur dreymt um frá því við vorum í 4. flokki er loksins orðið að veruleika." Hvernig líst þér á yngri flokkana hjá Val í handbolta, bæði karla og kvenna? „Ég held það sé ágætlega staðið að yngri flokka þjálfun í Val og er metnaður hjá félaginu að standa vel að yngri flokkun- um sem er að mínu mati afar mikilvægt, þ.e. halda vel utan um yngri flokka starf- ið til að krakkar haldi áhuga sínum og skili sér upp í meistaraflokka félagsins. Það hefur verið stofnað sérstakt barna- itt að velja eitthvað eitt sem stendur upp úr hjá mér. Það var t.d. mjög skemmtilegt að fá að fara til Kína á HM U20 ára og kynnast aðeins landinu og menningunni, auk þess sem við vorum fyrsta kvennalandsliðið í handbolta til að komast á lokakeppni. Það var einnig mjög minnisstætt þeg- ar við lékum á útivelli við Makedóníu í undankeppni HM. Leikurinn fór fram í niðurníddri höll þar sem fjalirnar í gólf- inu voru lausar og klósettin í höllinni voru hola ofan í jörðina. Leikurinn fór fram í troðfullri höll af trylltum áhorf- endum sem gerðu ekki annað en að púa á okkur, hrækja inn á völlinn og á haus- inn á þeim sem sátu á varamannabekkn- um og kasta hnetum í leikmenn. Leik- urinn tapaðist því miður en aðstæðurnar gerðu leikinn mjög minnisstæðan. Stemningin hjá landsliðinu er mjög góð í dag. Það hefur verið mikil endur- nýjun í landsliðinu undanfarin ár, en í dag er kominn ákveðinn kjarni í hópinn sem hefur verið saman um tíma og höf- um við þ.a.l. spilað betur og betur upp á síðkastið og er góður stígandi í leik liðs- ins. Við hittumst oftast í stuttan tíma fyrir hvert verkefni, en reynum alltaf að gera eitthvað félagslegt saman til að þjappa hópnum saman. Það er alltaf eitthvað sprell í öllum ferðum eins og spurninga- keppni milli yngri og eldri. Einnig borð- um við oft saman í æfingatörnum, förum í ratleik, óvissuferðir og annað skemmti- legt.“ Hvaða möguleika telur þú að lands- liðið hafi að komast í lokakeppni stórmóts? „Möguleikar kvennalandsliðsins á að komast á stórmót eru virkilega góð- ir. Við lentum nú í riðli með Austurríki, Frakklandi og Bretlandi í undankeppni fyrir EM og teljum möguleika okkar til að komast áfram vera góða. Nú er leik- ið heima og að heiman. Við höfum spil- að 2 leiki í riðlakeppninni, tapað fyr- ir Frakklandi og unnið Austurríki hér heima. Möguleikinn er klárlega til stað- ar og erum við staðráðnar í því að kom- ast á lokamót og tel ég það mjög raun- hæft markmið þar sem tvö lið komast upp úr riðlinum. Það yrði frábær árangur. Markmið hópsins eru skýr og allir stefna að því sama, sem er mikilvægt. Trúin 80 Valsblaðið 2009
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.