Valsblaðið - 01.05.2009, Side 86

Valsblaðið - 01.05.2009, Side 86
urnar eru um 15 að æfa og fór eldra árið til Vestmannaeyja í nóvember og vann sína deild. Duglegar og flottar stelpur sem eiga framtíðina fyrir sér 4. flokkur karla Veturinn í ár byrjaði á rólegu nótunum. Það var strax ljóst að það var nr. 1,2 og 3 að komast í efstu deild. Það tókst með miklum gæsibrag en samt sást að lið- ið átti nokkuð í land að ná bestu liðum landsins. Úrvalsdeildin byrjaði ekki vel og strákana vantaði bersýnilega trú á eig- in getu. En eftir mikla vinnu og þá helst á andlegu hliðinni tókst liðinu að spila frá- bærlega í nokkrum leikjum eftir áramót. Það sem stendur upp úr eftir veturinn er jafntefli bæði við Gróttu og Hauka í hörkuleikjum en það voru einmitt þau lið sem spiluðu til úrslita í 4. flokki sl. vet- ur. Strákarnir voru svo heppnir að fá tvo frábæra gestaþjálfara í vetur. Fyrst kom Dagur Sigurðsson og var með dreng- ina í flottu prógrammi í eina viku. Svo kom enginn annar en Boris Bjarni og kenndi strákunum í tæpan mánuð. Strák- amir tóku þátt á Partille í sumar. Þjálf- ari var Heimir Öm Árnason. Hann flutti til Akureyrar með fjölskyldu sinni og em honum þökkum góð störf fyrir félagið. Góður þjálfari sem á örugglega eftir að leggja það fyrir sig þegar hann hættir að spila. Við flokknum tók Maksim Akbac- hev, sonarsonur Borisar Akbachev og er hann að gera góða hluti. Fámennur hópur en áhugasamur og þjálfari kveikir í þeim neista og drengimir hafa sýnt framfar- ir strax. Gaman einnig að sjá þegar Max mætir með afa sinn, Boris en sá er nú orðinn 76 ára og getur enn kennt hand- bolta og gott betur en það. 4. flokkur kvenna Það vom 12 stelpur að æfa í 4. fl. sl. vet- ur og æfðu þær með 3.H. kvenna. Flokk- urinn fór í forkeppni í haust þar sem rað- að var niður í deildir, liðið þurfti svo að fara í milliriðil þar sem liðið spilaði virkilega vel og fékk það hlutskipti að spila í l.deild. Flokkurinn lenti í 8,sæti í deildinni og féll út í 16-liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ. Þjálfari var Jóhannes Lange. Sigfús Sigurðsson tók við flokkn- um í haust en 4. og 3. flokkur æfðu sam- an í fyrra en það margar stúlkur komu upp úr 5. flokki að aðskilja þurfti æfingar og flokkana. Það er mikill fengur að Fúsi skuli þjálfa í félaginu og gaman fyrir stelpurnar enda framfarir góðar og hann duglegur að kenna þeim réttu atriðin. í flokknum eru virkilega efnilegar stelpur sem þarf að hugsa vel um enda þarf Val- ur á næstu árum að hlúa vel að stúlkna- fokkkunum til að ala upp fleiri meist- araflokksleikmenn. Fúsa til aðstoðar er Gunnar Emir Birgissson, duglegur og efnilegur þjálfari og frábær Valsari. 3. flokkur karla Það voru 10 strákar skráðir í 3. fl. sl. vet- ur. Það var byrjað að fara í forkeppni til þess að raða niður í deildir fyrir veturinn og lentu strákarnir í 2. sæti í sínum riðli og komust því í 1. deild. Liðið endaði í 9. sæti í deildinni og duttu út í 8-liða úrslit- um í bikarkeppni HSÍ. 3. fl. fékk mjög góða hjálp frá 4. fl. vetur Þjálfarar voru Heimir Ríkharðsson og Jóhannes Lange. Heimir þjálfar áfram flokkinn sem æfir með 2. flokki og honum til aðstoðar er Maksim Akbachev. Strákarnir em allir á yngra ári nema Finnbogi markvörður en þarna eru 3 leikmenn sem hafa spreytt sig á meistaraflokksæfingum og einn nú þegar spilað nokkra leiki, Sveinn Aron Sveinsson. Flokkurinn vann sér réttindi að leika í 1. deild í haust en á enn eft- ir að sigra leik þar og það styttist í það. Það vantar ekki hæfileikana, sérstaklega sóknarlega, varnarlega eru þeir að bæta sig. Flokkurinn ætti að vera í toppbaráttu næsta vetur og margir þarna eiga góða möguleika að ná langt. 3. flokkur kvenna Það voru 4 stelpur skráðar í 3. fl. í vet- ur og æfðu því 3. og 4.fl. saman. Flokk- urinn fór í forkeppni og lenti í 3. sæti í henni og því varð það hlutskipti þeirra að spila í 2. deild. Flokkurinn endaði í 8. sæti í deildarkeppninni og féll út í 16-liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ. Þjálfari er Jóhannes Lange og hafa þær náð góðum úrslitum í undanförnum leikjum í haust. Flokkurinn er ekki fjölmennur en þær sem eru að æfa sinna því vel og fá aðstoð frá 4. flokki í leikjum. Nokkrar stelpur úr flokknum hafa æft með meistaraflokki og þarna eru stúlkur sem hafa getu til að spila þar á næstu árum ef þær halda rétt á spilunum og æfa vel. 2. flokkur karla Það vom um 8 strákar skráðir í 2. fl. sl. vetur en 2. og 3. fl. æfðu saman, 4 sinn- um í viku. Liðið lenti í ó.sæti í deildar- keppninni og datt út í 16-liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ. Þjálfarar voru Heimir Ríkharðsson og Jóhannes Lange. Heim- ir er áfram þjálfari. í 2. flokki eru flest- ir á yngsta ári, þ.e. fæddir 1991 og leika í 1. deildinni. Nokkrir leikmenn flokks- ins hafa komið við sögu meistaraflokks karla og æfa mestmegnis þar. Þetta eru Atli Már Báruson, Árni Alexander Bald- vinsson, Ólafur Einar Ómarsson, Friðrik Þór Sigmarsson (sonur Sigmars Þrast- ar) og Arnar Guðmundsson (sonur Guð- mundar Hrafnkelssonar). Flokkurinn er i samstarf við Þrótt og þar fengum við tvo frábæra drengi til liðs við okkur þá Aron Guðmundsson og Styrmi Sigurðs- son (son Sigga Sveins). Aron og Styrm- ir leika með 2. flokki, æfa með meistara- flokki Vals og leika einnig í 2. deild með meistaraflokki Þróttar. Stjórn handknattleiksdeildar Vals starfsárið 2009-2010 Stjórn handknattleiksdeildar vill þakka starfsmönnum félagsins ánægulegt sam- sarf á árinu. Þjálfurum, stuðningsmönn- um, styrktaraðilum, foreldrum og öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem hafa komið að starfinu er þakkað fyrir óeigin- gjarnt starf í þágu félagsins. Tvær breytingar urðu á stjórninni og eru Lilju Valdimarsdóttur og Sigurjóni Þráinssyni þökkuð góð störf fyrir hkd. Vals. Einnig vil ég bjóða Ása og Gyðu velkomin til starfa. Stjóm handknattleiksdeildar Vals starfsárið 2009-2010 er þannig skipuð: Sveinn Stefánsson,formaöur Ómar Ómarsson, varaformaður Gunnar Þór Möller, gjaldkeri Bjarni Már Bjarnason, meðstjórnandi Ásmundur Sveinsson, meðstjórnandi Gyða Jónsdóttir, meðstjórnandi F.h. stjórnar hkd. Vals Sveinn Stefánsson formaður 86 Valsblaðið 2009
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.