Morgunn - 01.12.1931, Síða 40
166
MORGUNN
Maður að nafni Terry, í Melbourne, fekk hjá henni
þrjá fundi, og’ var hinnar ströngustu varúðar gætt, sem
fyrri. Fundarmenn voru sex, og rituðu á eftir allir und
ir skýrslu um fundina. Á fyrsta fundinum féll fjöru-
steinn, 14 punda þungur, niður á borðið og síðan öll
ósköp af votu þangi með lifandi dýrum, sem líktust mar-
flóm. Á báðum síðari fundunum kom sex punda bjalia
og var í bæði skiftin flutt úr húsinu, sem miðillinn bjó í-
Mrs. Macjgs hét kona í Portsmouth. Hún var rithöf-
undur, en líka tilburðamiðill. Hershöfðinginn A. W•
Drayson, mentamaður og rithöfundur, hélt með henni
fundi, og komu þar tilburðir svo þúsundum skifti, þrr
á meðal egg, ávextir og alls konar jurtir. Einu sinni
kom bréf, frá Brooklyn, til Drayson’s sjálfs. Afskrift
var tekin af bréfinu, en eitt hornið á frumbréfinu var
rifið af, og bréfið svo lagt til hliðar, en það hvarf. Tíu
dögum síðar kom það í póstinum til Drayson’s herá-
höfðingja, og sást á póststimplinum, að það hafði ver-
ið sent frá New York eftir að fundurinn var haldinn
í Portsmouth. Innihald bréfsins var orði til orðs hið
sama og í afritinu og bréfið var auðþekkilegt af því, að
hornið hafði verið rifið af því.
Mrs. Guppy var ein af þessum undra-manneskjum-
Hún var gift stórríkum manni, sem hét Samuel Guppy-
Hjá henni gerðust tilburðir; einkum komu ávextir og
blóm. Áður en hún giftist hét hún Miss Nichol. Hafði
hún kynst vísindamanninum fræga Alfred Russel Wal-
lace, og segir hann nokkuð frá fyrirbrigðunum, er hjá
henni gerðust, og verður hér fyrst farið eftir frásögn
hans. Hún og nokkrir vinir hans höfðu setið heima hjá
honum í fjóra klukkutíma í litlu herbergi. Var þar
mjög lítið inni af húsgögnum. Sátu þau í gasljósi. Svo
var slökt og eftir fáar mínútur var búið að fylla borð-
ið af allskonar blómum og burknum. Alt var þetta
útlits eins og það væri nýkomið úr gróðrarhúsi, enda
var þetta um hávetur. Á blómunum var ofurlítil köld