Morgunn


Morgunn - 01.06.1944, Page 12

Morgunn - 01.06.1944, Page 12
8 M O R G U N N þarf jarðneski líkaminn einnig að deyja, sv^ að kjarninn, sem í honum felst, sálarlíkaminn, fái frelsi sitt og þroska- möguleika. Þetta er leyndardómur dauðans, eins og frum- kristnin þekkti hann, og eins og hin nýju sálrænu vísindi hafa uppgötvað hann fyrir rannsóknir margra mikilhæfra vísindamanna, sem unnið hafa sér heimsfrægð fyrir önnur vísindaleg afrek jafnhliða. Þennan sannleik hafa menn þekkt löngu fyrir daga Páls postula og frumkristninnar. Jobsbók ber það greinilega með sér, að hinn spaki höfundur hennar hefir vitað, að dauðinn er í því fólginn, að sálin er „dregin út“ af líkam- anum, eins og hann orðar það, en Páll virðist hafa haft fullkomnari vitneskju um það ástand sálarinnar, að hún er í likama, þótt ekki sé hann gerður af jarðnesku efní. Þessa hluti þekkti Páll fyrir dulskyggni sína. Hann hafði sjálfur séð Krist upprisinn, og hafði haft kynni af mörgum, sem höfðu séð hann hina eftirminnilegu daga, þegar hann gekk um meðal vina sinna og lærisveina í upprisulíkam- anum. Páll vissi þess vegna, hvað hann var að segja, þegar hann skrifar söfnuði sínum í Korintuborg, að til séu jarð- neskir líkamir og til séu himneskir líkamir. Þar var hann blátt áfram að tala um það, sem hann hafði heyrt og séð. Samkvæmt kenningu Páls postula, er upprisa Krists trygging fyrir upprisu vorri, og er það vitanlega rökrétt ályktað. En þá hljótum vér einnig að ganga út frá því, að enginn eðlismunur sé á upprisu vorri og uprisu hans, held- ur aðeins stigmunur, þar sem hann var fullkomnari en vér. Samt hefir lifað í kirkjunni fram til þessa dags, og lifir enn í mörgum sálmum, sem vér syngjum, kenningin um grafarsvefn, dómsdag og upprisu holdsins á efsta degi. Að ekki sé um ósköpin talað, eins og það, þegar einn af nútimabiskupum ensku kirkjunnar er að vígja kirkjugarð, sem liggur á fögrum stað, og samfagnar þeim, sem þar verði grafnir, yfir þeirri fögru útsýn, sem bíði þeirra, þegar þeir rísi úr gröfum sínum á efsta degi. Annað hvort skjátl- ast þessum guðfræðingum og sálmaskáldunum, eða Páli
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.