Morgunn - 01.06.1944, Blaðsíða 41
M O R G U N N
37
gaf hann mér og til leyfis, að birta hann, og set ég hann
hér eftir handriti hans. En það handrit sjálft geymi ég.
,,Árið 1840 á útmánuðum var hálfsystir mín, Eugenia
Iversen, 12 ára gömul, í Kaupmannahöfn og gekk í skóla.
Við vorum þá í sama húsi, og var það siður okkar, áður
en hún fór í skóla og ég á Contor þann, er ég vann á, að
drekka sameiginlega kaffi, þegar við vorum komin ofan.
Þá var það einn morgun, að mér þótti barnið óvenjulega
þegjandi, og eins og hugsandi, svo að ég spurði hana, hvort
henni væri illt. Hún neitaði því en sagði, að sig hefði
dreymt undarlegan draum, sem hún sagðist ekki skilja
neitt í. Hún sagði mér þá drauminn, og var hann svo:
Hana dreymdi, að hún væri á leið til skólans og kom þá
að stóru húsi. Á því var breitt port, sem stóð opið, og
þóttist hún fara þar inn. Þegar hún kom inn fyrir stóð hún
í stóru herbergi, er var alklætt svörtu klæði, og á miðju
gólfi stóð fjarska stór líkkista, sem var klædd með svörtu
flaueli, en á þeim enda, sem að henni sneri, stóðu með
gylltu letri þessi orð, sem hún mundi orðrétt, án þess að
skilja þau öll:
Her hviler
Christian den Ottende
Danmarks sidste souveraine Konge
Död den 20. Januar 1848.
þá þóttist hún standa í blóði upp í mjóalegg, varð hrædd
og vaknaði.
Barnið skildi sér í lagi ekki orðið ,,souveraine“ og spurði
mig, hvað það þýddi. Mér þótti, sem von var, daumur
þessi svo merkilegur að ég skifaði hann með sama í bók,
sem hún átti og á sjálfsagt enn.
Allir vita, hve þessi draumur kom berlega fram, þvi
Christian 8di dó 20. jan. 1848. Þá hætti einvaldsstjórn í