Morgunn - 01.06.1944, Qupperneq 42
38
M O R G U N N
Danmörku og stríðið um hertogadæmin byrjaði, en kostaði
mikið blóð.
Skrifað eftir áreiðanlegu minni 23. maí 1892, af
Guðm. Thorgrímsen.“
Br. Jónas Dulr. Smás. 1907
Svipur liins drukknaða.
Þessa sögu ritaði Brynjúlfur á Minna-Núpi eftir frásögn
Bjarna á Reykhólum sjálfs og las honum síðan, en Bjarni
staðfesti rétt uppritaða sannleikanum samkvæmt:
„Einn af sonum Kristjáns kammerráðs á Skarði hét
Ebenezer. Hann var hjá móður sinni eftir lát föður sins.
Hann var í góðu vinfengi við Bjarna bónda Þórðarson á
Reykhólum. Sundmaður var Ebenezer svo góður, að kall-
að var að hann væri „syndur sem selur“. Drykkfelldur
var hann í meira lagi. Vorið 1875 var það einn dag, að
Ebenezer fór í selalagnir út í svo nefnd Krókasker. Þeir
voru f jórir á skipi, hét einn þeirra Pétur, hann var og orð-
lagður sundmaður. Krókasker liggja milli Skarðs og Rauðs-
eyja. Sést út þangað frá Skarði. Það sáu konur á Skarði,
er úti voru, að þeir Ebenezer fóru úr lögnunum út í Rauðs-
eyjar. Var ætlað, að hann hefði farið þangað til þess að
fá sér brennivín. Litlu síðar sáu þær sigling hans heimleiðis
úr Rauðseyjum. Sunnanvindur var hægur, en nokkuð bylj-
ótt úr f jöllum ofan. Milli Krókaskerja og meginlands heitir
Ólafsey. Þá er þeir sigldu þar inn hjá, kom bylur í seglið og
hvolfdi skipinu. Horfðu konur á þetta heiman frá Skarði.
En með því að þær vissu, að enginn karlmaður var heima
og ekkert skip til taks, enda eigi skammt til sjávar heim-
an frá Skarði, þá sýndist þeim ekki til neins að segja hús-
móður sinni frá slysförinni og komu sér saman um að þegja
yfir henni, meðan mætti. Eftir fáa daga fannst skip þeirra
á hvolfi nálægt Mávaey, sem er vestur af Staðareyjum á
Reykjanesi. Eru þangað nær fjórar vikur sjávar þaðan,
sem því hafði hvolft. Var skipið heilt að öllu og með siglu-
i