Morgunn - 01.06.1944, Page 57
M O R G U N N
53
að pjálfa að eins með sér hina fyrstu tegund transins, eða
enga ella. En þetta er óviturlegt vegna þess, að það kann
að vera þeim ofvaxið, og þótt það kunni e. t. v. að reynast
kleift, kann það að kosta stjórnendurna áralangt starf að
ná þeim tökum á miðlinum, að þeir geti tekið hann í full-
komið meðvitundarleysi. En ef miðlarnir láta stjórnend-
urna alveg sjálfráða koma oft fram mikil og merkileg
fyrirbrigði áður en fullkomnu meðvitundarleysi er náð.
Þegar ég lít nú um öxl yfir reynslu mína, sé ég hversu
niiklum tima ég eyddi til einskis með því að krefjast þess,
að stjórnandi minn, Feda, stjórnaði mér algerlega eða að
öðrum kosti alls ekki.
Ég hefi þekkt nokkur dæmi þess, að miðlar, sem byrj-
uðu án þess að gera kröfu til fullkomins meðvitundarleysis
fyrst í stað, unnu merkilegt starf á meðan verið var að
þjálfa þá fyrir algeran trans.
Pesónulega vil ég gefa öllum, sem óska að verða trans-
miðlar, það ráð, að leyfa andastjórnendunum að stjórna
sér í byrjun með fullri vitund, gera ekki kröfu til að
,,sofna“ strax, en temja sér að taka við áhrifum og orð-
sendingum frá þeim og temja sér að gera ekkert annað
en að taka við, vera móttakendur.
Auðvitað er það gott, að miðilsefnið sýni þegar í byrj-
un möguleika fyrir algerum transi. En þeir, sem slík
merki sýna þegar í byrjun, eru fáir samanborið við hina,
sem geta þjálfað sig fljótt og vel með þriðju aðferðinni.
Ég endurtek því þá ráðlegging mína, að vera ekki of áfjáð-
ur í að keppa eftir algerlega meðvitundarlausum transi, ef
það tekst ekki eftir skynsamlega langan reynslutíma.
Það er augljóst mál, að margt fundafólk kýs helzt að
geta átt tal við látna ástvini í gegn um miðil, sem er með-
vitundarlaus og hefir enga hugmynd um það, sem fram
fer. Vitanlega verður samtalið með því móti innilegra og
óþvingaðra. Sumt fólk hyggur, að hinn algeri trans gefi
hinum framliðna betra tækifæri til að segja það, sem hann