Morgunn - 01.12.1950, Blaðsíða 5
MORGUNN
83
og hefur breiðzt mikið út. Dr. K. H. E. de Jong, velþekkt-
ur háskólamaður frá Delft hefur flutt fyrirlestra á veg-
um spíritistafélagsins í Amsterdam, bæði þar í borginni
og víðar, séra W. J. F. Meiners, fyrrum lúterskur prestur
í Hollandi, vinnur mikið fyrir málið, en einn bezti mið-
illin er Peter von de Hoek. Frá erfiðleikum þeim, sem
hann varð fyrir í bernsku vegna miðilsgáfu sinnar, segir
hann m. a. á þessa leið: Hann vann sem sendill í borg-
inni Zierksee og átti einhverju sinni að fara með kassa
af smákökum til manns nokkurs, sem ekki hafði reynzt
skilvís. Hann kom nú með kökukassann og bað um borg-
unina. Maðurinn kvaðst ekki hafa borgunina við hendina
að sinni, en Hoek svaraði óðara: ,,þú átt samt 25,67 flórin
í skúffunni þinni“. Maðurinn rak drenginn óðara á dyr
og kærði hann fyrir húsbónda hans fyrir að hafa stolizt
í peningaskúffuna sína! Drengurinn var rekinn úr vinn-
unni fyrir bragðið. Hann var orðinn 21 árs, þegar hon-
um varð Ijóst, hverri gáfu hann var gæddur.
Oft heyrast um það ratldir hér á landi, að skynsamur
almenningur eigi örðugt með að átta sig á sundurlynd-
inu um andlegu málin á Islandi, og því, hve flokkarnir
einangri sig með skoðanir sínar, loki dyrum sínum fyrir
rólegum umræðufundum um ágreiningsatriðin, og loki
húsum sínum fyrir öllu öðru en eigin sjónarmiðum og
skoðunum. Sumsstaðar annarsstaðar virðast menn ekki
vera eins hræddir við skoðanir þeirra, sem öðru vísi líta
á málin. 1 fyrrasumar var haldið alheimsþing fyrir frjáls-
lyndan kristindóm og trúfrelsi í Amsterdam. Þar voru
margir róttækir fulltrúar komnir, og allmargir únítarar.
Samt fengu þeir veitingasali hins stóra K.F.U.M.-húss í
Amsterdam lánaða til samvista á kvöldin. Ekki sýnast
K.F.U.M.-menn í Hollandi vera hræddir við frjálslyndu
sjónarmiðin. Líklega eru þeir svona miklu heimskari en
K.F.U.M.-menn hér, eða svona miklu lélegri útverðir rétt-
trúnaðarins. 1 sænska spíritistablaðinu Spiritualisten í
nóv. í fyrra var að venju birt starfsskrá spíritistafélags-