Morgunn - 01.12.1950, Blaðsíða 47
MORGUNN
125
ur nokkuð tíðrætt um í bréfunum. Það er þetta með
drykkjuskapinn. Hún hefur megna andúð á honum, m. a.
af þeirri ástæðu, að því er hún segir, að þegar menn
drekka áfengi meira en góðu hófi gegnir, þá nái ýms ill
öfl yfirhöndinni og framliðnir menn njóti áfengisins í
gegnum þá, sem þannig drekka of mikið. Hún segist ekki
hafa athugað þetta áður en hún fór héðan, en nú segist
hún vita það.
Þetta kemur alveg heim við það, sem skyggnir menn
hafa séð. Þeir segjast oft sjá allskonar ófagrar verur í
kringum þá, sem eru mjög drukknir, og þessar verur virð-
ast vera í svo nánu sambandi við hina drukknu menn, að
þær njóta áhrifanna af áfenginu í gegnum þá, og hafi
þá oft áhrif á mennina til þess að halda áfram drykkj-
unni, þótt sízt sé á það bætandi.
Merkur læknir vestur í Californíu, Dr. Carl Wickland,
hafði uppgötvað þetta fyrir löngu, og hafði í meira en
þrjátíu ár lækningastöð, þar sem hann læknaði menn af
drykkjuskap og hverskonar ásókn, með því að ná sam-
bandi, með aðstoð miðils, við hina framliðnu menn, sem
voru valdir að ástandi sjúklingsins. Þá gat hann talað
um fyrir þeim, fyrir milligöngu miðilsins, og sannfært þá
um ástand þeirra, sem hinir framliðnu oft vissu varla
um að væri eins slæmt og raun var á, þar til þeir sann-
færðust um, að þeir voru á villigötum og voru að gera
bæði sjálfum sér og þeim hér á jörðinni, sem þeir ásóttu,
stórtjón. Þegar þeir höfðu komizt að raun um þetta,
hættu þeir venjulega ásókninni og sjúklingurinn læknað-
ist. Það, sem Sigrún segir um þetta í bréfi sínu, er því
mjög merkilegt, því að hún hefur áreiðanlega ekki vitað
um þetta, er hún var hér á jörðinni, hinsvegar kemur
það alveg heim við reynslu Dr. Wicklands, sem hún eða
miðillinn hafa sjálfsagt aldrei heyrt getið um.
Margt ykkar, sem hér eruð í kvöld, og teljið ykkur
þegar hafa fengið fullnægjandi sannanir fyrir framhalds-