Morgunn - 01.12.1950, Síða 82
160
MORGUNN
mikilvægasta, ekki aðeins vegna þess, að hún skipar
skýringartilgátum þeim, sem fjallað hefur verið um inn-
an þeirra takmarka, er þeim hæfa, heldur og af því, að hún
knýr oss til að álykta, að það sé rétt, að fjarhrif eigi sér
stað og gerist, þá gerist þau undir öðrum og gjörólíkum
skilyrðum en ætlað hefur verið, skilyrðum, sem gera fjar-
hrifakenninguna ónýta og ónothæfa, til þess að rýra gildi
spíritistisku skýringuna eða afsanna hana, vegna þess að
útilokað er að skynhæfileikar mannlegrar dulvitundar fái
aflað sér efniviðar að eigin vild og geðþótta. Telemnesíu-
kenningin hefur nú verið sýnd í sínu rétta ljósi, en stað-
reyndirnar sýna, að starfs- og athafnasvið hennar hefur
nú mjög þrengzt, og að það, er vér nefnum fjarhrif (Tel-
emnesia), er orðið að fyrirbrigði, sem sýnir aðeins hæfi-
leika til að nema og veita móttöku aðsendum hugsunum
úr fjarlægð, og þá aðeins þeim einum, sem eru skýrar
og lifandi í huga sendandans, er komizt hefur í sálrænt
samband við dulskynjandann eða miðilinn samkvæmt skil-
yrðum þeim, er áður greinir.
En með þessu er jafnframt viðurkennt, að fjarhrifa-
kenningin (Telemnesia) er ekki lengur nothæf orðin til
þess að rýra eða afsanna mikilvægar sannanir fyrir per-
sónulegu framhaldslífi látinna manna.
Það er því auðsætt, enda sannað, að greinimáttur dul-
rænna skynhæfileika er takmörkunum háður, og hvað það
er, sem skapar þau takmörk, en með því hefur aðalsókn-
arvopn andstæðinga vorra verið hrifið úr höndum þeirra,
vopn, sem þeir notuðu svo óspart, þegar einhver þau fyr-
irbrigði gerðust, sem framkomnar skýringatilgátur nægðu
ekki til að ónýta eða afsanna. En það skal tekið fram,
að afvopnun þeirra er gerð í fullri vinsemd og af góðum
hug.