Morgunn - 01.12.1950, Page 30
108
MORGUNN
að reyna að skemmta henni, af því að hún er svona í
fætinum. Hún má ekki láta sér leiðast, að hún getur
ekki dansað.
Brynjólfur bróðir og Imba. Þið getið reynt að laga
Ungmennafélagið. Ekki megið þið Ungmennafélagar
drekka, að minnsta kosti ekki á skemmtunum. Þið verð-
ið að reyna að gera skemmtanirnar sem frjálsastar.
Ég vildi svo oft geta hjálpað ykkur, mamma mín og
pabbi, en nú get ég bara verið dálítið hjá ykkur og beðið
fyrir ykkur. Áður hafði ég gaman af að drífa eithvað
áfram og nú er ég farin að fá að hjálpa Kristrúnu. Hún
hefur verið svo góð við mig.
Hún biður að heilsa ykkur, sérstaklega Brynjólfi bróður.
Ég verð nú að hætta í þetta sinn, en vonast til að fá
að skrifa seinna. Fyrirgefið þið þetta bréf. Verið þið
blessuð alltaf, og ekki sízt þú, mamma mín. Ég hlakka
til að taka á móti ykkur þegar þar að kemur. Ykkar elsk-
andi, Sigga Dagsdóttir."
Svarbréf hjónanna í Gaulverjabæ til okkar var á þessa
leið:
„Sigrún í Gaulverjabæ andaðist 4. marz síðastliðinn,
þá 19 ára að aldri. Hún var mjög bráðþroska, bæði til
sálar og líkama, stór og fullorðinsleg. Á vinstra auganu
var brúnn blettur, sem tók yfir hálft sjáaldrið. Ekki var
það lýti á auganu, því augun voru mjög skírleg, nokkuð
stór.
Sigrún var í Ungmennafélagi Gaulverjabæjarhrepps og
var hún bókavörður í lestrarfélagi Ungmennafélagsins.
Bróðir hennar, Brynjólfur, er í félaginu. Var um tíma
formaður þess, þar til hann fór burtu til náms.
„Imba“, Ingibjörg, er systir hennar; er nú 17 ára
gömul. 1 banalegunni bað hún Imbu að annast fyrir sig
lestrarfélagið. Þegar Imba var þriggja ára, fékk hún
þunga veiki — lömunarveiki? Síðan er hún hölt í gangi
og ber aðrar meiri menjar veikinnar. Getur hún því alls
ekki dansað, né tekið þátt í skemmtunum, sem krefja