Morgunn - 01.12.1950, Blaðsíða 70
148
MORGUNN
máls er stjórnar sýnilegum og andlegum alheimi. Ef til
vill má nefna það „skyldleika lögmálið" (laws of affinity)
(samræmis- eða samstillingarlögmál). 1 sýnilegum alheimi
opinberast það sem aðsog og frákast, (miðsóknar- og mið-
flóttaafl). Það mótar og ákvarðar farbrautir himinhnatt-
anna, sólna og sólkerfa, hinna smæstu einda og öll efna-
sambönd eru því háð. Á andlegu sviði alheimsins opin-
berast verkanir þess í sálrænum tengslum og samböndum.
Frá sjónarmiði því, er hér um ræðir, og öðru því, er við-
fangsefnið snertir, er auðsætt,að lögmál þetta mótar einn-
ig og ákvarðar greinimátt dulrænna skynhæfileika mann-
legrar vitundar, en verkanir þess þrengja athafnasvið
þeirra verulega og setja skynorku þeirra ákveðin tak-
mörk. Þetta er hægt að færa sönnur á með skírskotun
til sannaðrar þekkingar á hliðstæðu fyrirbrigði í efnis-
heiminum, starfsháttum breytilegra ölduhræringa í rúm-
inu, og má í þessu sambandi minna á þær öldutegundir
umræddrar geimorku, sem birtast í notkun loftskeyta og
útvarps. Þessi merkilega uppgötvun á sviði efnisvísind-
anna sýnir svo ótvírætt sem verða má, að vér lifum og
hrærumst í straumum og iðusogi slíkra orkuölduhrær-
inga ýmissa tegunda. Án þess að vér skynjum þær eða
verðum þeirra varir á nokkurn hátt, þjóta þær fram og aft-
ur um rúmið með leifturhraða, gegnum efnið, híbýli vor
og líkami vora. En hvað sýnir nú þetta? Fyrst og fremst
það, að ef vér ætlum að hagnýta oss einhverja sveiflu-
tegund þessara ölduhræringa, þá verðum vér að haga oss
í samræmi við skyldleikalögmálið, sem sannfærir oss svo
ótvírætt um að líkur sækir líkan heim, en vísar hinum
á brott. 1 því sambandi sem hér um ræðir, er hagnýting
áðurnefnds lögmáls fólgin í því, að vér stillum öldunema
útvarpstækisins til samræmis við öldutegund þá, er út-
varpsstöðin sendir á, sem vér ætlum að hlusta á, en um
leið og þetta hefur tekizt, hættum vér að heyra til allra
annarra. Þannig eru staðreyndirnar. Vér skulum nú nota
það, er þetta fyrirbrigði í sýnilegum alheimi fræðir oss