Morgunn - 01.12.1950, Page 9
Mackenzie King,
forsætisráðherra Kanada, sem nú er nýlátinn, naut al-
mennra vinsælda í heimalandi sínu og mikillar hylli stjórn-
málamanna um heim allan. Mikil vinátta var milli hans
og hertogafrúarinnar af Hamilton, sem er alkimnur spír-
itisti og mikils metin kona.
1 viðtali við blaðamenn frá Psychic News segir hún frá
því, að forsætisráðherrann hafi verið eindreginn spíritisti
og hún segir svo: „Hann var fullkomlega sannfærður um,
að jarðneski heimurinn stæði undir andaleiðsögn, og hann
leitaði þessarar leiðsagnar sjálfur í starfi sínu, þótt hann
gæti stöðu sinnar vegna ekki látið mikið á þvi bera opin-
berlega. Hann bar takmarkalausa lotningu fyrir minning
móður sinnar og hann var sannfærður um, að hann nyti
leiðsagnar hennar frá andaheiminum. Hann hafði raunar
haft áhuga fyrir málinu miklu fyrr, en ég hygg, að hann
hafi fundið sterkari löngun til að leita sambandsins eftir
að hún fór af jörðunni“.
Hertogafrúin kvaðst ekki geta sagt, hvað hefði uppruna-
lega sannfært Mackenzie King um spíritismann, því að
þau voru bæði fyrir löngu orðin spíritistar, þegar fundum
þeirra bar fyrst saman, og voru þá hætt að krefjast per-
sónulegra sannana fyrir sig.
Þegar hann kom í heimsókn til Bretlands benti hertoga-
frúin honum á nokkura beztu miðlana, að beiðni hans,
og síðan annaðist hann sjálfur um að fá fundi með þeim.
Frú Osborne Leonard, miðillinn, sem sannfærði bezt Sir