Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Page 8

Morgunn - 01.12.1950, Page 8
86 MORGUNN ur innan kirkjunnar getur óátalið boðað örlítið dulbúinn spíritisma í almennu dagblaði á hverjum sunnudegi, pró- fastur getur verið meðlimur í sálarrannsóknafélaginu og presturinn í Temple-kirkjunni má gjarnan vera einn margra presta, sem ritað hafa heilar bækur vinsamlega um sálarrannsóknir, — allt þetta sætir engum átölum í ensku biskupakirkjunni, en þegar prestur í svo litlu þorpi, að það hefur ekki einu sinni jámbrautarstöð, lýsir yfir því, að hann einnig trúi því að spíritisminn sé að flytja sannleikann, þá er honum hótað því, að hann verði kærður fyrir villutrú.“ Líklega verður fleirum en grein- arhöfundinum í Psychic News örðugt að átta sig á ástand- inu í ensku biskupakirkjunni, og mörgum íslenzkum manni mun þykja vænna en áður um þjóðkirkjuna á Islandi, þegar honum berst þessi fregn. Sum ensku blöðin eru bersýnilega á öðru máli en þjóð- kirkjan þar í landi um spíritismann. Blaðamennirnir hafa yfirleitt ekki verið vinsamlegir i garð málsins, en á síðari árum er þetta nokkuð farið að breytast. Stórblaðið Daily Mirror, sem kemur út í meira en fjómm milljónum ein- taka, birti daglega um skeið í sumar ákveðnar áróðurs- greinar fyrir spíritismann, sem færir menn voru fengnir til að skrifa. Mundi ekki fjölmörgum lesendum íslenzkra blaða þykja vænt um, ef blöðin hér tækju upp slíka ráða- breytni? Flestum mönnum mun koma saman um, að dag- blöðin geri alltof lítið að því að flytja fróðleik um al- menn mál, sem ofarlega eru á baugi meðal almennings og mikið rædd. Draumspakir Islendingar, nýkomin bók, er Oscar Clausen, rith., hefur safnað efni í, mun verða mikið lesin eins og bók hans: Skyggnir ís- lendingar.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.