Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Page 12

Morgunn - 01.12.1950, Page 12
90 MORGUNN Hraðinn var hinn sami og áður, en vellíðan ennþá meiri, og nú fann ég til þess, að ég var ekki einn á ferð. Nú fann ég, að ég hvildi í fanginu á eða var í sterkum tengsl- um við einhverja veru, sem réð ferðinni, en hana sá ég ógerla enn. Smátt og smátt fór að birta í kring um mig. Fannst mér þó birtan í geiminum ekki vera sterkari en hálfbjart- ur vetrardagur, og birtan vera eins og blágræn. Nú sá ég allt í einu veruna, sem ég var að ferðast með. Yndis- fögur var hún, í mjallhvítum kyrtli og með hvita vefju um höfuðið, sem geislaði af. 1 þessum svifum tók ég eftir því, að við svifum yfir dásamlega fögru landi og fórum mjög lágt. Sá ég þar ganga eftir prýðilega gerðri hring- braut afskaplegan mannfjölda í hátíðabúningi. Þó fannst mér mest til um ljómann, sem lýsti af ásjónu fólksins. Mér fannst fólkið svo margt, að það myndi skipta þús- undum. Ég spurði veruna, sem með mér var, hvers konar skrúðganga þetta væri. Hún svaraði því, að þetta væri fólk á jólafagnaðargöngu. Jólin eru nú fyrir nokkuru lið- in, sagði ég, en veran sagði: nei, hér standa jólin lengur en hjá ykkur. Nú hvarf mér þessi mannfjöldi, en við svifum áfram hægt og yndislega; sé ég þá allt í einu opnast fram und- an stórt og fagurt svæði. Þótt himingeimurinn virtist sem hálfrokkinn vetrarhiminn, var dásamlega bjart þarna neðra. Að horfa eftir þessu svæði, fannst mér eins og að horfa eftir alllöngum, beinum vegarkafla, en öðru megin þessa svæðis sátu einhverjar verur, í þrí- eða fjórsettum röðum, eins langt og ég sá. Allar voru verur þessar í hvítum búningum, öllum af sömu gerð, og með hvítan höfuðbúnað. Fannst mér þó búningurinn vera hvítari en allt, sem ég hefði hvítast séð áður. Einkum fannst mér dásamlega bjartur bjarmi leika um höfuð og ásjónur þessa fólks. Unaðslegur friður og ró hvíldi yfir þessum stóra og yndislega hópi. Við nálguðumst verur þessar mjög hægt, og þá spurði

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.