Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Page 36

Morgunn - 01.12.1950, Page 36
114 MORGUNN strax í upphafi sér miðillinn hana og það svo greinilega, að hann getur lýst ytra útliti hennar svo að engu skakk- ar, jafnvel hinn brúni blettur í auga stúlkunnar sést? 1 öðru lagi heyrir miðillinn eitt og annað, sem einnig stend- ur heima, m. a. hið einkennilega gælunafn „Stjarneyg“. 1 þriðja lagi eru svo allar upplýsingarnar í bréfinu og öll nöfnin, sem einnig reynast rétt. Með mínum bezta vilja get ég heldur ekki með nokkru móti séð, að verið sé a. m. k. viljandi, að tefja þessa stúlku á þroskabrautinni, með þvi að lofa henni að koma þess- um skilaboðum til foreldra sinna. Enda er það reynsla mín í þau 25 ár, sem ég hefi sinnt þessum málum, og á því tímabili setið á óteljandi miðilsfundum — og hygg ég að það sé einnig reynsla flestra, sem eins er ástatt um, að aðeins þeir hafa látið frá sér heyra, sem sjálfir hafa óskað þess, og venjulega hafa skilaboð handan að komið til manna að fyrra bragði, en ekki hið gagnstæða. Áður en ég vík að hinum síðari bréfum Sigrúnar, vildi ég segja ykkur nánar frá einu smáatriði, sem ég gat um í sambandi við móttöku bréfsins, að ég mundi segja frá síðar. Það var þetta, að stundum vildi það til, að orðin voru stöfuð svo hratt, að erfitt var að fylgjast með og skrifa stafina nógu fljótt niður, hvað þá að greina þá sundur í orð og fá þannig vit út úr því sem skrifaðist, fyrr en farið var að lesa það á eftir. Ég á upphaflega handritið ennþá, eins og ég skrifaði það, jafnóðum og Jónas Þorbergsson nefndi stafina. Sést í því á einum stað, að ofurlítið hlé hefur orðið á milli þess að bent var á stafina, án þess þó að um orðaskil væri að ræða. Eina setninguna í bréfinu skrifaði ég þannig niður: „Þið verðið að reyna að skemmta henni, af því að hún er svo naíf“ og svo kom orð, sem ég skildi ekki hvað gæti verið. Það var „ætinu“, og nokkru seinna kemur stafurinn „m“, án þess þó að hann væri upphaf að öðru orði. Ég átti erfitt með að fá samhengi út úr þessu, og fannst mjög undarlegt, að íslenzk sveitastúlka, sem

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.