Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Side 38

Morgunn - 01.12.1950, Side 38
116 MORGUNN „Elskulega mamma mín, pabbi minn og systkini mín. Þakka ykkur fyrir allt gott. Ég er svo oft hjá ykk- ur og fylgist svo vel með ykkur, sem ég get, en það er allt öðruvísi en áður. Ég hjálpa Kristrúnu svo mikið til með börnin. Þið eruð oft að hugsa um, hvort ég muni spila á orgel eða eitthvað svoleiðis ennþá. Það geri ég nú reyndar ekki, en ég hefi nóg af söng.“ Þið munið, að í bréfinu frá foreldrum Sigrúnar, sem ég las áðan, sögðu þau: „Gaman væri að vita, hvort hún skemmtir sér við söng og hljóðfæri þar sem hún er nú.“ Þetta virðist beinlínis vera svar við því. — Hér hættir miðillinn að nota stafaborðið, og skrifar nú beint, eins og ég sagði áðan frá: „Það er svo gaman að hjálpa litlu bömunum. Þau eru líka svo fljót að átta sig, og þeim gengur svo vel að taka framförum. Ég er margt búin að sjá, síðan ég fór frá ykkur. Munið þið eftir hundinum, sem við áttum í Sviðu- görðum. Auminginn, hann átti svo bágt. Hann flæktist með vinnumannnium út að Loftsstöðum að mig minnir. Svo var hann aldrei heima meira. Ég hef séð hann síð- an ég dó.“ Ég spurði hana, hvort hún gæti munað, hvað hundur- inn héti. Hana minnti, að hann hafi heitið Sámur. Miðill- inn heyrði þetta, en nafnið reyndist ekki rétt, eins og síðar kemur fram. „Ég bið að heilsa öllum á heimilinu og ekki megið þið gleyma Huldu, þó að hún sé lítil. Þið verðið alltaf að muna eftir Tralla. Muna eftir að gefa honum.“ „Er Tralli hundur?" spurði ég. „Já, uppáhaldshundur hjá mér. Ég er nú ekki heldur búin að gleyma Kjamma eða Krumma.“ „Eru það hundar líka?“ spurði ég. „Nei, það eru nú hestar. Fyrst var Kjammi einlitur, svo hafði hann aðeins aðra kinnina rauða síðast. Nú er Kjammi hér. Hann var í fjósinu og ég gaf honum.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.