Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Side 43

Morgunn - 01.12.1950, Side 43
MORGUNN 121 og það gæti valdið leiðindum. Þetta sagði faðir Sigrúnar, og finnst mér það mjög skynsamlegt og rétt athugað hjá honum. Þá spurðum við hana, hvort hún væri ánægð núna, og svaraði hún því þannig, að hún væri miklu ánægðari en fyrst, og er við spurðum hana, hvert væri starf hennar nú, sagði hún það vera „að passa börn“. Því næst fór Sigrún að spyrja okkur um, hvort hún væri búin að tala um ýmislegt, sem hún minntist á, flest af því hafði hún skrifað um áður, svo ég sagði henni, að hún skyldi ekki fara að endurtaka það í bréfinu, en ef hún aftur á móti vissi um eitthvað, sem gerzt hefði nú í vetur, sem við vissum ekkert um, gæti verið gott að minnast á það sem sönnun. Þá varð dálítið hlé, og mig minnir, að hún hafi farið frá á meðan. Síðan segir hún: „Ég hefi nú talað um þetta við Jónas (þ. e. Jónas Hallgrímsson), og hann er sammála mér um að vera ekki með frekari sannanir. Ég vil ekki senda sannanir núna, af því að fólkinu þykir ekki svo mikið varið í þær, og bréfið verður þá leiðinlegra fyrir það. En ef þeim þykir það verra, að þær vanti, lát- ið þið mig vita. Það er svo erfitt með sannnair, þá þarf svo mikið að muna og verður svo lítið úr öðrum bréfa- skriftum." Þetta er auðvitað alveg rétt og satt hjá Sigrúnu, og þegar svo vel stendur á, að miðillinn sér hina framliðnu og þekkir þá, þá eru að vissu leyti frekari sannanir óþarf- ar, svo framarlega sem menn treysta miðlinum. Þá ætla ég að lesa bréfið, sem Sigrún skrifaði í þetta skipti: „Elsku mamma mín, pabbi minn og systkini! Ég ætla nú að byrja á því að skila kærri kveðju frá Kristrúnu Haraldsdóttur. Því má ég nú ékld gleyma. (Orðið ,,ekki“ undirstrikaði hún). Hún er alltaf jafn góð við mig. Ég reyni nú alltaf að hjálpa ykkur eftir mætti, þótt ég sé nú ekki stórvirk. Það er svo erfitt. Ég er orðin svo þróttlaus til erfiðisvinnu núna uppá síðkastið!

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.