Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Side 76

Morgunn - 01.12.1950, Side 76
154 MORGUNN En með það í huga, sem nú hefur sagt verið, vil ég minna á, að hjá hinum nafnfræga miðli, Mrs. Osborne Leonard, virðist einatt bregða fyrir auðsæjum undan- tekningum frá þeirri reglu, sem felst í staðhæfingunni um það, að vitneskja sú, er berist til viðtakanda fjar- hrifaleiðina (telemnesia), varði aldrei þriðju persónima, er hinn fjærstaddi maður þekkir, heldur aðeins persónu- leg einkamál sendandans. Einatt ber svo við á fundum hennar, að vitsmunavera sú, er segist vera framliðinn maður og leitast við að færa sönnur á að svo sé, kemur á framfæri þekkingaratriðum, sem snerta þriðju persón- una, þ. e. mann, er hinn f jarstaddi maður þekkir, en sett fram í spurnarforrni, en auðsætt er, að vitneskja sú, sem þannig kemur fram, er ekki sótt í dulvitund fundargests- ins, þar sem honum er með öllu ókunnugt um það, sem spurt er um. Með spíritistisku skýringuna í huga, sem ger- ir ráð fyrir persónulegri návist þess, sem verið er að segja frá, verður málið auðleyst og hið fræðilega vanda- mál verður ekki lengur til, þar sem umrædd þekkingar- atriði snerta æfinlega einhvern í fjölskyldunni eða vini hans, en með hina fræðilegu hlið málsins í huga, virðist réttara að láta hina einföldu og rökréttu spíritistisku skýr- ingu liggja á milli hluta að þessu sinni. Mér þykir rétt að skírskota hér til hins fróðlega og athyglisverða sam- tals, sem eitt sinn átti sér stað milli séra Drayton Thomas og vitsmunavera þeirra, sem kváðust vera faðir hans og systir, Etta að nafni. En þetta atvik er sömu tegundar og þau, sem sýnast mynda undantekningar frá umgetinni reglu. Etta gerði eftirfarandi athugasemdir í sambandi við vitneskju um útsaumaða handtösku, er einn af vinum fjölskyldunnar ætlaði að gefa móður hans, en faðir hans virðist hafa komizt á snoðir um þetta og trúað syni sín- um fyrir því. Etta komst svo að orði: „Ef vér gerum ráð fyrir því, að hugsunin um að færa mömmu þessa gjöf, hafi borizt til hennar, þá myndi hún vera skynjanleg í bliki hennar og mér hefði verið unnt að greina hana þar

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.