Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Page 77

Morgunn - 01.12.1950, Page 77
MORGUNN 155 næsta dag, ef til vill. Sumum mönnum virðist auðvelt að geyma aðsendcir hugsanir í bliki sínu lengi vel, öðrum tekst það ekki, og það er auðveldara að ná hugsunum frá þessum en hinum.“ (Life beyond Death, bls. 100). Og faðir hennar gerir samhljóða athugasemd um blik fund- argestsins. Hann segir: „Þegar ég er nálægt þér, greini ég oft hugsanir, sem menn senda til þín, þær festast í bliki þínu og þar fæ ég lesið þær.“ Og stuttu síðar bætir hann við: „Já, blik þitt nemur hugsanir, sem beint er til þín. Taka má t. d. ljósmyndaplötu til samanburðar. Blik þitt er næmt fyrir áhrifum frá hugsunum annarra, nemur myndir og áhrif á hliðstæðan hátt og ljósmynda- platan. Vel má vera, að þú verðir ekki sjálfur var slíkra áhrifa, af því að þú ,,framkallar“ þau ekki, en þetta getur niér verið hægt að gera.“ Séra Drayton Thomas gerir svohljóðandi athugasemd við þetta: „Faðir minn virðist einhvern veginn hafa orðið var hugsana, er varða sjálfan mig og orðið hafa til í hug- um annarra manna, þó að ég yrði þessa ekki var á nokk- urn hátt. Hin einkennilega skýring föður míns er sú, að hann hafi skynjað þær í bliki mínu. . .. Einu sinni lét hann t. d. þess getið, að ég myndi bráðlega fá tilmæli frá niönnum í Liverpool um að flytja þar erindi. Ég hafði enga ástæðu til að búast við þessu, en eigi að síður fekk ég bréf frá Liverpool nokkru síðar með tilmælum um þetta, og það var skrifað og sett í póst daginn áður en ég var á fundinum hjá Mrs. Leonard. öðru sinni sagði hann mér, að ég myndi fá bréf frá útgefendum bóka minna, sem ég hafði enga ástæðu til að vænta, en það kom eig að síður daginn eftir. Venjulega erum vér með öllu óvitandi um hugsanir þær, sem til vor er beint úr fjarlægð, en ég tel að fjarhrifafyrirbrigðið sanni, að hugs- anir fjærstaddra manna fái náð til vor. Mér skilst, að útvarpið megi nota sem hliðstætt dæmi. Sendistöðin vek- ur ölduhræringar í ljósvakanum umhverfis oss, sem vér erum með öllu óvitandi um. En þegar mótttökutækið er

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.