Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Page 80

Morgunn - 01.12.1950, Page 80
158 MORGUNN mig bar?“ segir ungfrúin. „Mér virðist sennilegast, að hér hafi verið um táknræna mynd að ræða, er sýnt hafi skaphöfn hans og innra eðli. Þessi tilgáta mín hefur styrkzt við það, að hann var siðar riðinn við óheillarík- an atburð, sem hafði alvarlegar afleiðingar fyrir hann. Hér virðist eitthvað svipað hafa gerzt og þegar þeir, sem tala af vörum miðils í dásvefni, virðast byggja upp eða móta myndir af umhverfi eða atburðum, því að mér virð- ist ósennilegt, að hér hafi verið um beinan hugsanaflutn- ing að ræða. Það væri að mér virðist fremur óeðlileg skýring og langsótt, að þessi að minnsta kosti tíu ára gamli viðburður hafi þá stund verið vakandi og skýr í huga hans.“ Próf. Bozzano kveðst fallast á þá skoðun ungfrúar- innar, að skyggniskynjun hennar eigi ekki orsök í starf- andi vitundarlífi umrædds manns og næsta ósennilegt virðist, að hann hefði einbeitt hugsunum sínum að þess- um atburði einmitt þessa stund. En um leið og vér höfn- um slíkri skýringartilgátu sem ónothæfri, sjáum vér jafn- framt, að skyggniskynjun ungfrúarinnar sýnir, að hinn sálræni maður skynjar í dulvitund annars manns persónu- leg minningaatriði frá liðnum árum. En atvik þetta sýn- ir jafnframt, að mynd þess, er ungfrúin skynjar, snertir persónuleg atriði úr einkalífi viðkomandi manns, sem ekki snerta hinn þriðja hið minnsta. Ég hygg, að ég hafi nú með þessu greitt úr þessu fræði- lega vandamáli og sýnt fram á, að efnisatriði þess séu ekki í neinu ósamræmi við áðurgreindar niðurstöðuálykt- anir, og með því sýnt fram á, að þau atriði í áðurgreindri skyggnisskynjun ungfrúarinnar, sem í fyrstu gátu virzt vera í ósamræmi eða andstöðu við staðhæfingamar um það, að skynhæfileikar dulvitundar miðlanna sýndu að- eins hæfileika til móttökunæmis fyrir aðsendum hugsun- um, en samkvæmt því ætti þeim aðeins að vera unnt að greina og nema hugsanir, sem eru vakandi og starfandi í vitundarlífi þess manns, er þeir hafa komizt í sálrænt

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.