Morgunn - 01.06.1962, Page 16
Aíeð virðingu og þakklæli er grein þessi
iileinkuö svissneska sdlfrœðingnum
C. G. Jung, sem lézt í Ziirich 9. júní
1961, 86 ára a<5 aldri.
Úr ríki sálarinnar
Eftir Úlf Ragnarsson, hérouðslækni.
★
Ritsmíð mín er reist á grundvelli ævilangs áhuga á sál-
rænum efnum, miklu grufli, miklum bóklestri og ýmsu,
sem við hefur borið í vöku og svefni og milli vita.
Allt hefði þetta orðið gagnslaust og ófrjótt, ef ekki hefði
verið hulin hönd að verki, sem agaði, verndaði og leiddi
af meiri vizku en breyzkum manni er gefin, og sá til þess,
að réttir menn og réttir atburðir komu til sögunnar á rétt-
um tíma.
Ekki er beðið afsökunar á því, að stundum er gripið til
Pegasusar til að flýta förinni. Hver verður að hafa þau
ráð, sem honum eru tiltækilegust, og gæðingurinn sá renn-
ur léttilega margt það skeið, sem aðra hesta fellir. Hann
hefur ætíð verið boðberi sannleikans í augum þeirra, sem
augu hafa til að sjá. Margar sagnir, sem skröksögur hafa
verið nefndar, geyma dýpri vizku en annálar og ævi-
skýrslur.
Vill lesari minn leggja sig í þeysireið um ríki sálarinn-
ar á hestinum þeim, sem hleypur og skín?
Hver, sem bregður á þann leik, verður að vera í tung-
unni trúr, tryggur og hreinn í lund. Að öðrum kosti hrýtur
bannsetningin fyrr eða síðar af vörum: „Ég nenni því
ekki.‘, eða eins og það er orðað með nútímakurteisi: „Ég