Morgunn


Morgunn - 01.06.1962, Side 46

Morgunn - 01.06.1962, Side 46
42 MORGUNN Fornaldarmennirnir voru á undan oss nútímamönnum að því, er til spíritisma kemur. Stofnendur heimstrúar- bragðanna miklu kunnu á því betri tök en vér nútíma- menn, að sækja til fanga í forðabúr alheimsins, og þeir gerðu stærri uppgötvanir á því sviði en vér gjörum í dag. Zoroaster, sem sumir telja fæddan um 6 þús. árum fyrir Krist, og aðrir aðeins 6 hundruð árum, og ýmsir allt þar á milli, hafði slíkt vald yfir sálrænum öflum, að hann varð fremstur allra töframanna Kaldeanna. Svo mikil og langlíf urðu áhrif hans, að það voru lærisveinar hans, sem fylgdu stjörnunni til Betlehem. Zoroaster sagði fyrir fæðingu Krists, komu mannkynslausnarans, á einni af samfélagsstundum sínum með alheimsskaparanum, sem hann nefndi Ahura Mazda. í skyggnisýn sá þessi mikli persneski sjáandi barátt- una milli Ahura Mazda (Guðs) og Angra Mainya (Sat- ans). Og í vitrun greindi hann hina sex Amesha Spenta, erkienglana, sem einnig voru hugmyndir, sem gátu hjálp- að manninum til að sigrast á hinu illa og ná einingu við Guð, og hann kallaði þessar hugmyndir, eða þessa erki- engla: Góðan hug, góða reglu, algert vald, algera hollustu, fullkomnun og ódauðleika. Hann lýsti þessum erkienglum sem skínandi verum með ljómandi, lýsandi augum. Hann sá þá í heimkynn- um sínum og fylgdi þeim á för þeirra, er þeir fóru til að vinna köllunarverk sitt á hinum sjö tilverusviðum, sem mynda alheiminn. Þeir veittu honum innsýn í hið stórkostlega „drama“ tilverunnar, allt frá frumkorninu, atóminu, og til hinnar endanlegu upprisu dauðra, þeg- ar jörðin átti ,að kenningu hans, að vera ódauðleg um alla eilífð. Þannig varð upphaf Zoroaster-trúar. Hún spratt upp af sálrænni reynslu. Hundruð þúsunda læri- sveina hans, sem nefnast Parsar, eru sannfærðir um, að Zoroaster hafi talað við Guð.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.