Morgunn


Morgunn - 01.06.1962, Side 47

Morgunn - 01.06.1962, Side 47
MORGUNN 43 Þá er Hindúisminn einnig voldugt eyland í fljóti hinn- ar sístreymandi sálrænu reynslu mannkyns. Hér e.r ekki um að ræða trú stofnaða af manni, heldur opinberun frá hinum Ótakmarkaða Huga, sem notaði sem farvegi til manna meistara, er sökktu, sér niður í sálræna hugskoð- un. Þessir menn voru gæddir yfirnáttúrlegum hæfileik- um. Þeir sáu sýnir, þeir heyrðu raddir, og þeir viðuðu að sér ódauðlegum sannindum úr garði Guðs. Enginn túlkar Hindúismann á vorum dögum eins vel og dr. S. Radhakrishnan, en hann segir: „Á fágætum augnablik- um andlegs lífs skynjum vér nálægð hins guðlega." Þannig urðu upptök Hindúismans, spíritísk, fyrir mið- ilsstarf, af sálrænum rótum. Hin miklu helgirit hans, Gita, Upanishadbækurnar og Vedabækurnar, voru ekki skrifuð af þjálfuðum vitsmunamönnum, þau eru hrað- rituð af innblásnum sjáendum, sem skrifuðu, á valdi sál- rænna áhrifa. Þau geyma opinberaða speki um karma, endurholdgun, yoga og hin heimspekilega mótuðu hugtök blekkingar og raunveruleika, sem eru grundvallarhugtök austrænnar trúspeki. I Upanishadbókunum er þannig sungið: „í upphafi var ekkert til, nema Hann Sjálfur. Hann litaðist um en sá ekkert annað en Sig Sjálfan. Hann varð hræddur eins og allir verða, sem einmana eru. En þá sagði Hann: Hvers vegna skyldi ég óttast, fyrst enginn er til, nema Ég?“ Þessi urðu upptök Hindúismans, átrúnaður á einn Guð, hið Guðlega Sjálf. Og nú játa 320 milljónir manna þenn- an átrúnað. Og þannig trúa Búddhatrúarmenn á sannleika Búddha. Og hví skyldu þeir ekki gjöra það? Hin sálræna reynsla er áhrifamikið atriði bæði í lífi Gotama Búddha og í sögu trúarbragða hans. Þótt helgisagnablærinn sé víða auð- sær á hinum fornu heimildum, er þetta auðsætt. Búddha var til — svo er kennt — frá upphafi tímans. Hann var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.