Morgunn


Morgunn - 01.06.1962, Síða 49

Morgunn - 01.06.1962, Síða 49
MORGUNN 45 í Mamreslundi. Móse sá fingur Guðs rita á steininn og Samúel heyrði himneska rödd. Fingur ósýnilegrar hand- ar reit á hallarvegg konungsins. E. t. v. eru engin rit eins þrungin af sögum um sálræn fyrirbrigði og Gamla testamentið, nema ef vera skyldi guðspjöllin og Postula- sagan, að ógleymdri Opinberunarbókinni. I öllum trúarbrögðum kemur það fyrir, að mörkin verða óglögg milli hins sálræna og heimspekilegra sanninda. T. d. er tilgangur margra frásagna hins gamla sáttmála, að fela, eða opinbera, andleg sannindi með líkingamáli og goðsögnum. En í öllu þessu leynast djúp, sem enginn kannar nema dulsinninn, og spíritistísk fyrirbrigði, sem enginn getur túlkað nema sá, sem sálrænum hæfileikum er búinn. Þess vegna voru hvorir tveggja til í gyðing- dómi ,dulsinnar, Hasidistarnir og sálrænir menn, Kabbal- istar. Til gyðingdóms teljast nú 15 milljónir manna og þeir vegsama dulsinna og spíritista Gyðingdómsins fyrir það ljós, sem þeir hafa varpað á veg trúarinnar. Kristnir menn trúa því, að spámenn Gyðinga hafi tal- að fyrir munn Guðs. í helgiritum kristinna manna er þvi haldið fram um a. m. k. þrjá þeirra, Elía, Móse og Samúel, að eftir dauðann hafi þeir komið aftur til að sýna sig jarðneskum mönnum. Engin trúarbrögð eru eins eindregin andatrú — spíritismi — og kristindómur- inn. En kristnum mönnum mörgum líkar ekki þetta nafn, og sumar deildir kristninnar, eins og rómv. kaþólskir menn, trúa því, að samband við framliðna sé verk djöf- ulsins. Kaþólska kirkjan fordæmir sambandstilraunir spíritista, „jafnvel þótt samband við Satan sé útilokað og sambands sé leitað við góða anda aðeins“. En engu að síður rennur sálrænn straumur gegn um allt helgisiðakerfi kristninnar. Á það er minnt, að Krist- ur hafi dáið og risið upp frá dauðum. Að hann hafi birzt Maríu og postulunum. Að hann hafi stigið upp til himna og lofað að koma aftur til jarðarinnar. Máttugasti boð- beri kristinnar trúar um löndin var maður, sem orðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.