Morgunn


Morgunn - 01.06.1962, Síða 72

Morgunn - 01.06.1962, Síða 72
68 MORGUNN maður, sem stóð við byrgið bar á milli orðsendingarnar. Hann sneri sér að Fl. Marryat og sagði: „Ég veit ekki, hvað þér heitið“. „Og ég vona að þér fáið heldur ekki að vita það strax“, hugsaði hún með sér, því að nafni sínu vildi hún umfram allt halda leyndu innan um þetta ókunn- uga fólk, en hún var þá orðin víða kunn af bókum sínum. Aðstoðarmaðurinn sagði, að vera væri að líkamast í byrg- inu, sem ætti erindi við hana, og bætti við: „Hér er anda- vera komin, sem kveðst eiga erindi við frú, sem heiti Florence og sé hingað komin yfir Atlantshafið.“ Sam- stundis kom hún þvert yfir gólfið, gekk að móður sinni, féll um háls henni og sagði: „Mamma, ég var búin að segja þér, að ég færi með þér. Var ég ekki búin að því?“ Fl. Marryat skrifar: „Ég virti hana fyrir mér. Hún var hér nákvæmlega eins og hún hafði verið, þegar hún var að koma til mín heima í Englandi, sama mikla, brúna hárið, sami vöxtur, sömu andlitsdrættir og ég hafði þar séð hjá miðlunum Fl. Cook, Arthur Coleman, Charles, Williams og William Eglinton. Sama veran stóð nú hér fyrir framan mig í New York, í þúsund mílna fjarlægð frá heimili mínu og heimalandi. Og þetta gerðist hjá konu, sem vissi ekki ,hver ég var. Florence mín var eins glöð og ég var sjálf, hún margkyssti mig og hélt áfram að tala um atvik, sem gerzt höfðu í skipinu á leiðinni yfir hafið, og hún virtist vita nákvæmlega um það allt.“ Fagurlega lýsir skáldkonan gleði sinni yfir því, að fá að hitta dóttur sína í fjalægri heimsálfu og heyra, af hve mikilli og ástúðlegri nákvæmni hún hafði fylgzt með henni á sjóferðinni yfir hafið. Hún segir: „Ég gæti skrifað margar blaðsíður um hina yndislegu framkomu hennar við mig, hin elskulegu og stundum há- tíðlegu skilaboð, sem hún flutti mér. Það hefir verið dá- samlegt fyrir mig, að mega fylgjast með því, hvernig sam- bandið við hana breyttist eftir því sem árin hafa liðið.“ Barnið kunni engin tök á því, að tjá sig móður sinni í fyrsta sinn, er hún náði sambandi við hana. En þegar ár-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.