Morgunn


Morgunn - 01.06.1962, Síða 74

Morgunn - 01.06.1962, Síða 74
70 MORGUNN Fóstra konunnar lá háöldruð og beið dauðans. 70 ár- um fyrr hafði hún verið gift, misst manninn sinn í byrj- un hjúskapar og tveim árum síðar einkadóttur þeirra, einkabarn, Kristínu. Gamla konan var fáorð mjög um hagi sína og hafði alltaf verið. Með sorg sína hafði hún ung flútzt í annað byggðarlag, og þar voru aðeins örfáir, sem vissu fyrri raunir hennar. Fósturdóttir hennar sagði mér, að aðeins fáum sinnum öll þessi mörgu ár hefði hún heyrt fóstru sína minnast á stúlkuna, sem hún hafði misst, og hún kvaðst ekki vita, hvort hún hefði búizt við, að hitta hana aftur í öðrum heimi. Um það hefði gamla konan verið fáorð, sem annað. Nú voru liðin nærfellt 70 ár frá andláti litlu Kristínar, og háaldraða konan lá í dvala að mestu. Seinasta nóttin var komin. Hvað eftir annað um nóttina kom konan að rúmi fóstru sinnar, en enga breytingu var að sjá, dval- inn var djúpur og vær, þjáning engin. Um miðja nóttina vaknar gamla konan af dvalanum og segir við fósturdóttur sína: Elsku Guðrún mín, hvers vegna lætur þú þessa ókunnugu stúlku vera að koma hingað inn, þú veizt að mér er ekki ýkja mikið um ó- kunnugt fólk. Guðrún vildi eyða þessu, en gamla konan, sem þá var með fullri rænu, stóð fast á sínu máli, en sofnaði aftur. Enn vaknaði hún nokkru síðar og sagði: Hvers vegna er þessi stúlka hér enn. Hún situr fast hjá mér og vill láta svo ósköp vel að mér. Hún er ákaflega ástúðleg, en ég veit ekki hver hún er og kæri mig lítið um atlot ókunn- ugra. Þú skalt biðja hana, að ganga fram til þín. Nokkru síðar sofnaði gamla konan enn. Það var komið undir morgun og enn vaknaði gamla konan og var skýr í augum og máli, auðsjáanlega með fullri rænu. Stúlkan er hér enn — sagði hún —. Hún hefur ekki vikið frá mér og er undurgóð og ástúðleg. Hún strýkur hönd mína og vanga svo mjúkt og hlýlega. Gamla konan þagnaði, starði fast framundan sér. Þá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.