Morgunn - 01.06.1962, Síða 80
76
MORGUNN
6.
Sjáðu fallegu konurnar
Ungfrú H. (dóttir prestsins) var hjá fátækri konu í
sókn föður síns og leitaðist við að veita henni alla þá
hjálp er hún mátti. Lítið barn þessarar konu lá fyrir
dauðanum. Tvö rúm voru í herberginu, annað þeirra var
barnsrúm og í því svaf drengur á fjórða ári, bróðir
litla barnsins. Hann hafði verið sofandi um hríð. Ung-
frú H. og móðir litla barnsins, stóðu við hliðina á stærra
rúminu, þar sem litla barnið lá að dauða komið. Allt
í einu heyrðu þær að kallað var frá litla rúminu til
þeirra. Þær litu við og sáu nú sér til mikillar undrunar
að litli hnokkinn sat uppi í rúmi sínu, og var glað-vak-
andi, og benti á rúmið sem þær stóðu við og gleði og
hrifning speglaðist í svip hans um leið og hann sagði:
„Mamma, ó, mamma, sjáðu fallegu konurnar, sem standa
allt í kringum hann „Lilla“. Mamma, mamma, mamma,
þær eru að fara með hann „Lilla“.
Stainton Moses hnýtti svohljóðandi athugasemd við
frásögn þessa: „Með tilliti til árása þeirra, sem tízka
virðist vera orðin að beina gegn miðilshæfileikanum og
ætluðum orsökum spiritistiskra fyrirbrigða, er mikils
virði að fá slíkar frásagnir sem þessar, þvi að börn og
brjóstmylkinga er naumast hægt að telja samvizkulausa
þorpara eða þjálfaða svikara. Bæta má því við, að naum-
ast væri hægt að væna þau um að hugsun þeirra hafi
skapað myndir þær, er þau segjast hafa séð. Því miður
minnist hann ekki á aldur barnsins, sem andaðist þetta
kvöld, en af orðum hans um „börn og brjóstmylkinga“
virðist mega ráða að „Lilli“ hafi verið mjög ungur.