Morgunn - 01.06.1963, Page 19
MORGUNN
13
þessu miðar ekkert áfram, það er svo lítið, sem maður
fær að vita í gegn um miðlana, að það er gagnslaust að
vera að leita þeirra.
Ég held að þeir, sem vitað hafa hvað þeir voru að gera,
hafi aldrei lofað því, að spíritisminn gæti kortlagt alheim-
inn eða gefið einhverskonar ugglaust símasamband við
framliðna menn. Mér hefir frá byrjun sýnzt þeir menn,
sem slíkt hafa ætlað sér, hafi ekki verið þess umkomnir,
að fást við málið og hefðu aldrei átt að fást við það. Það
er ómótmælanlegt, að beztu og öruggustu miðlar og til-
raunamenn hafa gert sér ljóst, að þeir komust að vissu
marki og ekki lengra. Mér kemur vitanlega ekki í hug að
neita því, að með hjálp sumra miðla, og þá einkum beztu
skrifmiðlanna, hafa komið fram mjög athyglisverðar og
mjög sennilegar og mjög skynsamlegar lýsingar af lífinu
fyrir handan gröf og dauða. En hjá fæstum miðlum, sem
mér er kunnugt um, hefir nokkuð komið fram í þessa átt-
ina, sem verulega miklu máli skiptir og óhjákvæmilegt er
að taka algerlega til greina. Því verður ekki með skyn-
semd og sanngirni neitað, að miðlasambandið hefir ekki
reynzt sú opinberunarlind, sem margir væntu á fyrri ár-
um og margir treystu staðfastlega á.
Er þá ekki allt unnið fyrir gýg? Er þá til nokkurs að
vera að halda áfram?
Því svara ég afdráttarlaust játandi og held því fram,
að það er nauðsynlegra en flest annað, sem fengizt er við,
að haldið sé áfram. Enn sem komið er, er meginviðfangs-
efnið það, að færa á það sönnur, leita fyrir því öruggra
sannana, leiða að því sem flestar og sterkastar líkur, að
mannssálin lifi líkamsdauðann. Eins og högum mannkyns-
ins er komið, held ég að ekkert annað sé nauðsynlegra og
vænlegra til blessunar. Hversvegna viðgengst það, sem
mestri bölvun veldur á jörðu? Hversvegna er mannkynið
enn svo fjarlægt því, að sinna í alvöru meginkenningu
Krists um bræðralag, samfélagslíf og skyldur við sam-
félagið ? Það er vegna þess að menn trúa því ekki í alvöru,