Morgunn - 01.06.1963, Side 27
MORGUNN
21
sóknamanna, hinn heimskunni vísindamaður Sir 'William
Crookes, hafi vegna ástarævintýra sinna með miðlinum
Florence Cook, leynt brögðum, sem hún hafði í frammi í
miðilsstarfi sínu og þannig gerzt henni samsekur.
Um þetta hefi ég nokkuð skrifað í síðasta hefti Morguns
og mun ekki fara mörgum orðum um það. Þó vil ég taka
þetta fram: Þótt mörgum hljóti að sárna mjög, að svo
ljótur skuggi hefir fallið á minningu þessa fræga manns
og afskipti hans af sálarrannsóknamálinu, breytir það
engu um málið sjálft og sannleiksgildi þess og gildi ann-
arra sannana fyrir framhaldslífi. Þetta er ekki í fyrsta
sinn, að líkamningamiðlar hafa valdið miklum vonbrigð-
um. Og það er kannski sérstaklega þessvegna, að miklu
minna hefir á seinni árum verið lagt upp úr sönnunargildi
líkamningafyrirbrigðanna fyrir framhaldslífi, en áður var
gert. Jafnvel svo sannfærður spíritisti sem Sir Arthur
Conan Doyle, taldi líkamningafyrirbærin sanna lítið um
framhaldslíf. Það eru hugrænu miðlafyrirbærin, sem
sanna mest. Og við þau er það, svo að segja einvörðungu,
að þeir menn fást, sem nú á tímum nefnast parapsycho-
logar. Þeir hafa raunar fengizt minna við samstarf með
miðlum, en sálarrannsóknamenn hafa gert. Þeir fást meira
við þau sálræn fyrirbæri, sem sannanlega gerast án þess
eftir þeim sé leitað hjá miðlum. En víst er það, að spurn-
ingin um framhaldslíf og rannsókn á þeim fyrirbærum,
sem til þess benda, leita á þessa menn fastar og fastar.
Hinsvegar sýnist mér að ýmislegt bendi til þess, að sann-
ana fyrir framhaldslífi verði á komandi árum leitað ekki
síður með því að rannsaka hæfileika, sem með jarðneskum
mönnum búa, en með því að leita sambands við framliðna
menn.
Það er gott til þess að vita, að nýjar stefnur, nýjar
leiðir er verið að fara innan sálarrannsóknanna. Með því
eiga forystumenn þessa félags að fylgjast eins og kostur
er á, og kynna síðan félagsfólki og almenningi. Verkefnin
eru mikil, sem bíða félags vors. En þótt það hljóti nokkuð