Morgunn - 01.06.1963, Side 37
MORGUNN
31
mönnum að ná sambandi við þá látnu. En ég er sann-
færður um að faðir minn birtist mér hvað eftir annað,
og því mun ég trúa meðan ég lifi“.
Ég ætla nú að segja frá öðru dæmi þess að erfðaskrá
fannst, og að þessu sinni fyrir tilstilli miðils. Þetta atvik
er enn trúverðugra vegna þess, að við málið kom hinn
látni forsætisráðherra Kanada, Mackenzie King. Ég hefi
ekki fengið tækifæri til þess að lesa eigin frásögn hans.
Síðdegis í nóv. 1947 var Mackenzie King forsætisráð-
herra gestur hjá mér og E. B. G. samverkakonu minni.
Ég spurði hann þá, hvað einkanlega hefði vakið áhuga
hans á sálarrannsóknamálinu og sannfært hann um að
látnir lifa.
Hann sagði mér, að markgreifafrúin af Aberdeen hefði
fyrst vakið áhuga sinn á málinu. Fyrir tilstilli hennar
hefði hann fengið tækifæri til að sitja fundi hjá Mrs.
Wriedt, kunnum miðli fyrir beinar raddir.
Og hann hélt áfram: „Erfðaskrá eins vina minna virt-
ist týnd og varð ekki fundin. I miðilssambandi hjá Mrs.
Wriedt sagði framliðinn kanadískur þingmaður, sem gjört
hafði erfðaskrána, hvar hana væri að finna, í tiltekinni
skattholsskúffu í tilteknu húsi í Frakklandi. Eftir þessari
tilvísun fannst erfðaskráin á þessum stað“.
Forsætisráðherrann sagði mér ennfremur, að að svo
miklu leyti sem vitað yrði, hefði engum jarðneskum manni
verið kunnugt um, hvar erfðaskráin væri niðurkomin, svo
að ekki hefði miðillinn, frú Wriedt, getað fengið þá vitn-
eskju með fjarhrifum úr huga nokkurs lifandi manns.
Samt getur parapsychologían ekki viðurkennt, að þetta
sé sönnun fyrir framhaldslífi þingmannsins, heldur sé
þetta aðeins sönnun fyrir sálrænum gáfum miðilsins. Sum-
ir þeirra, sem leggja stund á þessi vísindi, gera ráð fyrir
allsherjarhuga (collective mind), sem geymi allt hið liðna,
allt sem er og allt sem verður, og mannlegum verum við-
kemur, einskonar allsherjar bókasafni, sem ekki sé stað-
bundið og lokað sé líkamlegum skynfærum manna . . . .